flugfréttir
Hætta við pöntun í fimmtíu Boeing 737 MAX þotur
Fyrsta Boeing 737 MAX þota Garuda Indonesia
Indónesíska flugfélagið Garuda Indonesia hefur hætt við pöntun sína í þær Boeing 737 MAX þotur sem félagið hafði pantað.
Garuda Indonesia pantaði 50 Boeing 737 MAX þotur árið 2014 að andvirði 592 milljarða króna
en félagið hefur aðeins fengið fyrstu þotuna afhenta og á að taka við annarri þotunni á næstunni
og áttu afhendingar að standa yfir til ársins 2030.
Frá því að flugslysið í Eþíópíu átti sér stað þann 10. mars sl. þá hefur verið uppi orðrómur um að
félagið ætli að hætta við pöntunina en forstjóri Garuda Indonesia sendi Boeing bréf í dag þess
efnis að félagið vildi hætta við pöntunina.
Forstjóri félagsins segir að þrátt fyrir að Boeing komi með lausn á vandamálinu og uppfærslu
á MCAS-kerfinu, sem talið er að hafa orsakað bæði flugslysin í Eþíópíu og Indónesíu, þá sé málið hinsvegar það
að farþegar treysti ekki lengur Boeing 737 MAX og að traust þeirra mun ekki koma til baka
þrátt fyrir að kerfið sé lagað.
„Þrátt fyrir að búið verði að laga kerfið á Boeing 737 MAX þá er traust farþega farið. Á þeim
forsendum förum við fram á að hætta við pöntunina“, segir meðal annars í bréfinu.
Garuda Indonesia hefur í dag 73 þotur í flotanum af gerðinni Boeing 737-800 en heildarfjöldi
flotans stendur í 143 flugvélum af gerðinni Airbus A330, ATR 72-600, Boeing 737-800,
Boeing 777-300ER og Bombardier CRJ1000.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.