flugfréttir
Indigo Partners hættir við fjárfestingu í WOW air
- Viðræður við Icelandair Group hefjast að nýju
Icelandair hafði náð samkomulagi um kaup í WOW air í byrjun nóvember
Tilkynnt var í kvöld um að Indigo Partners hafi slitið viðræðum um fyrirhugaða fjárfestingu í WOW air.
Þetta kom fram í fréttatilkynningu á vefsíðu WOW air og segir þar meðal annars að Indigo Partners hafi ákveðið að slíta
frekari viðræðum um fjárfestingu í rekstri félagsins.
Vegna þessa þá hefur WOW air hafið viðræður að nýju við Icelandair Group og er stefnt á að viðræður muni fara fram
yfir helgina og er vonast til að þeim verði lokið mánudaginn 25. mars.
Það var þann 29. nóvember sl. að tilkynnt var um að bandaríska fyrirtækið Indigo Partners hefði náð samkomulagi
um fjárfestingu í WOW air í kjölfar erfiðleika félagsins en þá hafði verið ákveðið að falla frá kaupsamningi sem gerðir
var við Icelandair Group þann 5. nóvember 2018.
Fram kemur að viðræðurnar muni fara fram í samráði við stjórnvöld en í
tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir:
„Stjórnvöld hafa síðasta árið fylgst með erfiðleikum í alþjóðlegum flugrekstri og samkeppnisstöðu íslenskra flugfélaga í því ljósi. Eigendur Wow air hafa um nokkurra mánaða skeið leitað leiða til að tryggja rekstur félagsins og hafa átt viðræður við fjárfesta, flugrekendur og aðra haghafa. Hingað til hafa þær viðræður ekki skilað þeim árangri sem eigandi félagsins stefndi að.
Ríkisstjórnin mun áfram fylgjast grannt með framvindunni og bindur vonir við að viðræður félaganna muni skila farsælli niðurstöðu“.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.