flugfréttir
Næstu atvinnuflugmannsbekkir hefjast í maí og september
- Stærsti flugskólinn á Norðurlöndum með 23 kennsluflugvélar
Aðsókn í atvinnuflugmannsnám á Íslandi hefur aukist gríðarlega á síðustu árum enda mikil tækifæri í boði þar sem eftirspurn er mikil í heiminum eftir nýjum flugmönnum
Flugakademíu Keilis hefur opnað fyrir umsóknir í flugnám í fyrsta sinn eftir sameininguna við Flugskóla Íslands en bóklegt nám fer nú fram á tveimur stöðum, í Reykjavík og í Reykjanesbæ.
Verkleg kennsla fer hinsvegar fram víðsvegar um land; á Keflavíkurflugvelli, Reykjavíkurflugvelli
og á Alexandersflugvelli norður í Skagafirði en fyrirhugað er að hefja flugkennslu á fleirum stöðum
á landinu á næstunni.
Það var þann 17. janúar sl. sem að tilkynnt var um kaup Flugakademíu Keilis á Flugskóla Íslands
en með sameiningunni varð til einn stærsti flugskóli á Norðurlöndum með yfir 400 nemendur
sem stunda flugnám við báða skólanna í dag.
Diamond DA20 kennsluflugvél hefur sig á loft frá
Alexandersflugvelli
Þá telur flugfloti skólans alls 23 kennsluflugvélar af gerðinni Diamond DA20, Diamond DA40, DA42 NG,
Tecnam P2002 JF, Cessna 172N, Piper Seminole PA-44 og Piper Archer DX sem komu nýjar
til lands í fyrra til Flugskóla Íslands.
Margir möguleikar á Alexandersflugvelli
Með aðstöðunni á Alexandersflugvelli opnast margir möguleikar til flugkennslu í nýju umhverfi þar sem nemendur
geta stundað verklega flugkennslu í fjölbreyttu landslagi og einnig verður hægt að halda úti kennslu oftar hverju sinni á landinu þar sem bjartara getur verið fyrir norðan ef ekki viðrar vel til flugkennslu fyrir sunnan og öfugt en oft er sitthvort veðrið á Norðurlandinu og á Suðvesturhorni landsins og þá sérstaklega á sumrin sem er besti tíminn fyrir flugkennslu.
Þá er einnig stutt á marga flugvelli á Norðurlandinu frá Alexandersflugvelli og möguleiki á að fara í yfirlandsflug til Akureyrar og yfir á Vestfirði og Strandirnar en gert er ráð fyrir að um 20 nemendur muni dvelja hverju sinni á Sauðárkróki
á meðan á verklegu atvinnuflugmannsnámi stendur og verður skólinn með 2 til 3 kennsluflugvélar staðsettar á Alexandersflugvelli.
Gríðarleg ásókn hefur verið í flugnám hjá báðum skólunum að undanförnu og hefur verið fullt í nýja bekki með töluverðum fyrirvara fyrir skólasetningu vegna vinsælda námsins og þá sérstaklega í samtvinnuðu atvinnuflugmannsnámi.
Flugnám er bæði skemmtilegt og krefjandi
Opið bæði fyrir umsóknir í samtvinnað og áfangaskipt atvinnuflugnám
Flugakademían hefur opnað fyrir umsóknir í næstu atvinnuflugmannsbekki en boðið verður bæði upp á
samtvinnað atvinnuflugnám og áfangaskipt atvinnuflugnám og hefst næsta námskeið í maí og það síðara í september 2019.
Í samtvinnuðu atvinnflugnámi (Intergrated Pilot Program) er um að ræða einn „pakka“ þar sem nemandi hefur flugnám
án nokkurns grunns í flugi og leggur stund bæði
á bóklegt og verklegt nám samhliða
frá
A til Ö þar til nemandi lýkur námi með atvinnuflugmannsskírteini og er því tilbúinn til þess að sækja um hjá flugfélögunum.
Nýju Piper Archer DX kennsluflugvélarnar
Með áfangaskiptu atvinnuflugnám (modular) getur nemandi hagað seglum meira eftir vindi varðandi bóklegt nám og verklega
hlutann og hentar sú leið umsækjendum sem eru t.a.m. með fjölskyldur eða aðrar skuldbindingar sem þarf að sinna sem annars gæti haft áhrif á nemandann og tekur áfangaskipt atvinnuflugnám aðeins lengri tíma sem nemur 2-3 mánuðum.
Frekari upplýsingar um næstu námskeið og slóð inn á umsóknarvef fyrir næstu atvinnuflugmannsbekki má finna hér að neðan.
Umsókn um atvinnuflugmannsnám
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.