flugfréttir
Samoa Airways vill hætta við Boeing 737 MAX
- Höfðu pantað eina þotu sem átti að afhendast í lok þessa mánaðar
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX þotu í litum Samoa Airways
Ríkisflugfélagið Samoa Airways hefur tilkynnt að félagið ætli ekki að taka við þeirri Boeing 737 MAX þotu sem félagið hafði pantað fyrir tveimur mánuðum síðan.
Samoa Airways, sem hefur höfuðstöðvar á Faleolo-flugvellinum á Samóa-eyjum í Kyrrahafi, pantaði eina Boeing 737 MAX 9
þotu og stóð til að afhenda þotuna til félagsins í mars.
Tuilaepa Aiono Sailele Malielegaoi, forsætisráðherra Samóa, segir að þess í stað þá ætli ríkisstjórn eyjanna að leita
að annarri flugvél og sé verið að skoða að taka inn aðra Boeing 737-800 þotu í stað Boeing 737 MAX.
Samoa Airways gerði leigusamning þann 17. janúar sl. um leigu á Boeing 737 MAX 9 þotu frá Air Lease Corporation og átti sú þota
að leysa af hólmi þá einu Boeing 737-800 þotu sem félagið hefur í flotanum í dag en félagið hefur einnig þrjár Twin Otter flugvélar.
Samoa Airways er annað flugfélagið sem hættir við Boeing 737 MAX í kjölfar flugslysanna en indónesíska flugfélagið
Garuda Indonesia tilkynnti í seinustu viku að félagið hefði ákveðið að hætta við pöntun í allar þær 49 Boeing 737 MAX
þotur sem félagið á von á.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.