flugfréttir

Icelandair mun ekki fljúga til Cleveland í sumar

27. mars 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:05

„Dyrhólaey“, Boeing 737 MAX þota Icelandair

Icelandair mun ekki halda áfram að fljúga til bandarísku borgarinnar Cleveland í Ohio en fyrsta flugið þangað var flogið þann 17. maí í fyrra.

Fram kemur að kyrrsetning Boeing 737 MAX þotnanna sé ein meginástæða þess að félagið mun ekki halda áfram að fljúga til Cleveland en til stóð að hefja flug þangað að nýju þann 17. maí næstkomandi.

Michael Raucheisen, talsmaður Icelandair í Norður-Ameríku, segir að félagið þurfi að nýta aðrar flugvélar í flugflotanum sem best yfir sumarið og var því ákveðið að hætta flugi til Cleveland.

Raucheisen segir að ef aðrar tilfæringar og breytingar verði gerðar á leiðarkerfinu þá verði það gert þegar nær dregur sumri.

Fram kemur að þeir farþegar, sem áttu bókað flug til Cleveland, verði færðir til og bókaðir með öðru flugi í gegnum Boston eða Minneapolis.

Icelandair kynnti Cleveland sem nýjan áfangastað þann 22. ágúst 2017 og var borgin nítjándi áfangastaður Icelandair í Norður-Ameríku. Tveimur dögum síðar, þann 24. ágúst, tilkynnti WOW air að félagið myndi einnig hefja flug til Cleveland og þriggja annarra borga sem voru St. Louis, Cincinnati og Detroit.

Flugið Icelandair til Cleveland var næg eingöngu flogið með Boeing 737 MAX þotunum en Icelandair var fyrsta flugfélagið til að fljúga beint til Cleveland frá Íslandi í beinu flugi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga