flugfréttir
Sagt að EASA hafi sniðgengið kynningu Boeing á uppfærslunni
- Einn flugmaður á Boeing 737 MAX gekk út af kynningunni í Renton
Ný Boeing 737 MAX þota í Renton
Sagt er að fjölmargir aðilar á vegum evrópskra flugmálayfirvalda (EASA) auk einhverra flugmanna og starfsmanna flugfélaga ákváðu að sniðganga boð Boeing um að vera viðstaddir kynningarfund flugvélaframleiðandans í síðustu viku þegar uppfærslan á MCAS-kerfi Boeing 737 MAX þotunnar var formlega kynnt sem framleiðandinn segir að sé tilbúin.
Um 200 aðilum var boðið að vera viðstaddir kynninguna sem fór fram í verksmiðjum Boeing í Renton
en Boeing mun á næstunni senda sérfræðinga til Evrópu til að kynna MCAS-uppfærsluna fyrir EASA en ekki er vitað
hvort að flugmálastofnunin hafi ákveðið að hitta starfsmenn Boeing.
Álit þeirra flugmanna sem fljúga Boeing 737 MAX á öryggi vélarinnar er almennt mjög gott og og segja flestir flugmenn að þotan og kerfi hennar virka nákvæmlega eins og þau eigi að gera og sumir segja að kyrrsetningin hafi verið óþörf.
„Okkur leist mjög vel á þessa flugvél eins og hún var fyrir breytinguna á MCAS-kerfinu. Þessar endurbætur hafa gert hana
bara enn betri“, segir einn flugstjóri sem flýgur Boeing 737 MAX hjá American Airlines.
Ekki eru allir flugmenn sáttir út í Boeing en einn flugmaður, sem flýgur Boeing 737 MAX, strunsaði út af kynningarfundi
Boeing sl. miðvikudag þar sem honum finnst að Boeing þurfi að gera betur er kemur að viðbótarþjálfun fyrir MCAS-uppfærsluna en að bjóða upp á 30 mínútna kynningarmyndband fyrir flugmenn sem hægt er að nálgast á iPad-spjaldtölvu.
Hvort sem að EASA hafi vísvitandi ekki vilja kynna sér uppfærsluna á MCAS-kerfinu í Bandaríkjunum, sem Boeing segir að sé tilbúin fyrir uppsetningu, þá er talið að þetta endurspegli þann pólitíska ríg sem upp er komin milli flugmálayfirvalda í Evrópu og flugmálayfirvalda í Bandaríkjunum (FAA) sem margir telja að sé orðin of náin Boeing.
Sérfræðingur einn hjá fyrirtækinu JPMorgan segir að flugmálayfirvöld í mörgum löndum
í heiminum muni taka afstöðu til viðbragða frá EASA þegar þar að kemur en álit margra landa er að miklu leyti háð
því hvaða dóm evrópsk flugmálayfirvöld eigi eftir að leggja á uppfærsluna.
Flugmálayfirvöld í Evrópu, Kanada og í Kína ætla sér að framkvæma sína eigin úttekt á MCAS-uppfærslunni óháð því
hvað vottun bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) mun fela í sér.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.