flugfréttir

Ilyushin Il-112V flýgur jómfrúarflugið

- Fyrsta fraktflugvél Rússa eftir fall Sovíetríkjanna

1. apríl 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:03

Ilyushin Il-112V flugvélin í jómfrúarfluginu sl. laugardag

Rússar flugu sl. laugardag Ilyushin Il-112V flugvélinni sem er fyrsta herflutningaflugvélin sem Rússar hafa framleitt eftir fall Sovíetríkjanna.

Flestir eru kunnugir Antonov-herflutningavélunum An-124 og An-225 Mriya en báðar þær vélar voru smíðaðar á níundaáratugnum, nokkrum árum áður en Sovíetríkin liðu undir lok.

Allir íhlutir í Ilyushin Il-112V eru framleiddir í Rússlandi en flugvélin er tveggja hreyfla, hávængja flugvél sem getur borið fimm tonn af frakt og er flugvélin sögð vera miklu hagkvæmari og sparneytnari en Antonov An-26 og An-24.

Ilyuhsin Il-112V er 24 metrar á lengd og hefur vænghaf upp á 27,6 metra og kemur flugvélin með tvemur Klimov TV7-117ST þotuskrúfumótorum og sex blaða loftskrúfu.

Fyrstu drög að Ilyushin Il-112 vöru gerð árið 2009

Flugvélin nær farflugshraða upp á 270 hnúta og hefur flugdrægi upp á 1.296 mílur (nm) og getur farið upp í 24.900 feta hæð.

Flugvélin kemur í tveimur útgáfum, annarsvegar Il-112V sem er herflutningaútgáfan en einnig stendur til að smíða hefðbunda fraktútgáfu fyrir borgaralegt flug sem nefnist Il-112T.

Ilyushin Il-112V var hönnuð og þróuð af Ilyushin Aviation Complex en er framleidd af Voronezh Aircraft Production Association.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga