flugfréttir
Icelandair tekur á leigu tvær Boeing 767 breiðþotur
- Verða í flotanum í sumar út september
Boeing 767-300ER breiðþota Icelandair
Icelandair hefur ákveðið að taka á leigu tvær Boeing 767 breiðþotur til að fyrirbyggja mögulega röskun á leiðarkerfi félagsins vegna kyrrsetningar á Boeing 737 MAX vélunum.
Í tilkynnningu frá Icelandair kemur fram að félagið hafi gengið frá leigu á tveimur Boeing 767 breiðþotum en sú fyrri kemur í rekstur um miðjan apríl en sú síðari snemma í maí.
Báðar breiðþoturnar verða í rekstri út septembermánuð og er um er að ræða 262 sæta flugvélar með tveimur farrýmum og eru vélarnar með afþreyingarkerfi. Þá er félagið að vinna að því að leigja þriðju vélina sem myndi bætast við flotann í sumar.
Félagið vinnur jafnframt að endurskoðun flugáætlunar sinnar fyrir sumarið 2019 í kjölfar mikilla breytinga á samkeppnisumhverfinu. Þegar Boeing 737 MAX vélarnar koma í rekstur þá hefur félagið möguleika á að auka framboð í háönn frá því sem áður var áætlað þar sem ofangreindar breiðþotur hafa bæst í flotann.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.