flugfréttir

Annað stærsta flugfélag Hollands mun fljúga til Íslands

- Transavia mun fljúga þrisvar í viku til landsins frá Amsterdam

1. apríl 2019

|

Frétt skrifuð kl. 18:05

Boeing 737-800 þota Transavia

Hollenska flugfélagið Transavia mun hefja áætlunarflug til Íslands frá Schiphol-flugvellinum í Amsterdam en félagið mun fljúga til Keflavíkur þrisvar sinnum í viku í sumar.

Fyrsta flug Transavia til landsins mun hefjast þann 1. júlí og verður flogið á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum en í fréttatilkynningu frá Isavia kemur fram að með þessu sé verið að koma til móts við þá eftirspurn sem var eftir flugi milli Amsterdam og Keflavíkur eftir brotthvarfs WOW air af flugmarkaðnum.

Ákvörðun um flug Transavia til Keflavíkurflugvallar er tekin með samstarfsaðilanum Voigt Trave. „Við sjáum þetta sem gott tækifæri fyrir báða aðila og er útvíkkun á okkar samstarfi. Að auki mun Transavia fljúga til Akureyrar í samstarfi við Voigt Travel frá og með 27. maí og er við því að gera Ísland enn aðgengilegri,“ segir Cees van den Bosch, framkvæmdastjóri Voigt Travel.

Grænn er einkennislitur Transavia

Transavia er fyrsta nýja flugfélagið sem hefur boðað komu sína til Keflavíkurflugvallar en sl. ár hafa oftast nokkur ný flugfélög bæst við í flóruna en seinasta nýja flugfélagið sem hóf flug til landsins var rússneska flugfélagið S7 Airlines sem flaug sitt fyrsta flug til landsins þann 9. júní í fyrra.

Transavia Netherlands er hollensk lággjaldaflugfélag og hluti af Air France KLM Group. Transavia er annað stærsta flugfélagið í Hollandi. Það flýgur til meira en 110 áfangastaða, aðallega í Evrópu og Norður-Afríku. Transavia flytur meira en 15 milljón farþega á ári.

Þegar ljóst var að WOW air myndi hætta starfsemi hafði Isavia samband við Transavia Netherlands sem höfðu áður sýnt Íslandi áhuga sem áfangastað. „Transavia brást skjótt við og lýsti fljótt yfir áhuga á því að hefja flug milli Keflavíkur og Amsterdam. Þetta eru virkilega ánægjuleg niðurstaða en Isavia mun áfram leita til flugfélaga um að hefja flug til landsins,“ segir Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Isavia.

Þess má geta að systurfélagið Transavia France hefur sl. sumur flogið til Keflavíkurflugvallar frá Orly-flugvellinum í París.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga