flugfréttir
Smíðaði sína eigin flugvél en var handtekinn eftir fyrsta flugið
- Vissi ekki að það væru sérstök lög og reglugerðir um loftför
Fram kemur að Fayaz hafi ekki vitað að það væru lög og reglugerðir sem gilda um flugvélar og önnur loftför
Lögreglan í Pakistan handtók í dag pakistanskan karlmann sem var nýlentur eftir að hafa flogið sitt fyrsta flug á flugvél sem hann hafði smíðað sjálfur og hannað frá grunni.
Lögreglan fékk tilkynningu um að karlmaður í smábænum Arifwala, í um 160 kílómetra suður af borginni Lahore, hafði smíðað
flugvél og var sagt að hann ætlaði að gera tilraun til að vita hvort hún gæti flogið.
Maðurinn, Fayaz að nafni, var ákærður fyrir að hafa smíðað flugvél án leyfis en hann sagði við yfirheyrslu að hann
hefði selt jörð sem hann átti og varið fénu til þess að hanna og smíða sína eigin flugvél þar sem draumur hans var að fljúga.
Flugvélin sem Fayaz hafði smíðað sjálfur
Um hundruði íbúar í þorpinu voru samankomnir til þess að sjá Fayaz fljúga flugvélinni í fyrsta sinn en einhver í hópnum
hafði hringt á lögregluna sem var fljót á staðinn og til að stoppa mannin af en hann hafði þá náð að fljúga örstutta vegalend.
Flugvélin sem Fayaz hafði smíðað er mjög lítil, á stærð við fis, en lögreglan lagði hald á hana og setti upp á kerru
sem var dregin niður á lögreglustöð á dráttarvél.
Fram kemur að Fayaz hafi verið miður sín og að hann hafi ekki verið meðvitaður um að það væru viss lög og reglugerðir varðandi flugvélar sem heyra
undir flugmálayfirvöld í Pakistan. Maðurinn var frjáls ferða sinna skömmu síðar gegn tryggingargjaldi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.