flugfréttir

Adria Airways riftir samningi um kaup á Superjet-þotum

4. apríl 2019

|

Frétt skrifuð kl. 10:13

Tölvugerð mynd af Sukhoi Superjet 100 þotunni í litum Adria Airways

Slóvenska flugfélagið Adria Airways hefur slitið viðræðum við rússneska flugvélaframleiðandann Sukhoi um kaup á fimmtán Sukhoi Superjet 100 þotum.

Adria Airways lagði inn pöntunina í nóvember í fyrra og var einnig undirritaður samningur um víðtækt samstarf um viðhaldsþjónustu á vélunum þar sem til stóð að reisa viðgerðarverkstæði á flugvellinum í höfuðborginni Ljubljana.

Báðir aðilarnir hafa sitthvora ástæðuna fyrir því að samningnum var rift en Adria Airways segist hafa efasemdir um að Sukhoi eigi ekki eftir að ná að standa við sinn hluta samningsins og þá telur framleiðandinn að rekstrarstaða flugfélagsins sé ekki nægilega góð til þess að standa við kaupsamninginn á flugvélunum.

Stjórn og hluthafar Adria Airways segjast ætla að einblína á að styrkja flugfélagið á öðrum forsendum þar sem fyrirhuguð kaup á Sukhoi Superjet 100 þotunum er ekki lengur inni í myndinni en félagið hefði orðið annað flugfélagið í Evrópu til þess að fá þessa flugvélategund afhenta.

Írska flugfélagið CityJet var fyrsta evrópska flugfélagið til þess að fá SSJ100 þotuna en félagið hefur hætt rekstri með þeim og hyggst skila þeim aftur til framleiðandans.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga