flugfréttir

Birta bráðabirgðaskýrslu vegna flugslyssins í Eþíópíu

- „Flugmennirnir fylgdu réttum fyrirmælum við neyðarviðbrögðum frá Boeing“

4. apríl 2019

|

Frétt skrifuð kl. 10:47

Boeing 737 MAX þota Ethiopian Airlines

Stjórnvöld í Eþíópíu kynntu í morgun bráðabirgðaskýrslu vegna flugslyssins er Boeing 737 MAX þota frá Ethiopian Airlines fórst skömmu eftir flugtak frá Addis Ababa þann 10. mars.

Það var samgönguráðherra landsins sem kynnti skýrsluna og kemur fram að flugmenn vélarinnar hafi farið eftir réttum verklagsferlum frá Boeing er kemur að neyðarviðbrögðum og á það einnig við varðandi kerfi sem þeir aftengdu ítrekað en fram kemur að kerfið tók sífellt aftur yfir þrátt fyrir tilraunir flugmannana til þess að ná handstýra flugvélinni án kerfisins.

MCAS-kerfið var ekki tekið sérstaklega fram í skýrslunni en í skýrslunni segir að flugmönnunum hafi ekki tekist að forða flugvélinni frá því steypast með nefið niður á við þar sem kerfið greip sífellt inn í og vann á móti tilraun þeirra til þess að ná tökum á stjórn vélarinnar. Frekar iniðurstöður varðandi ítarlega greiningu á slysinu mun liggja fyrir síðar þar sem sérfræðingar og rannsóknaraðilar eru enn að rannsaka slysið.

Meginorsök slyssins liggur enn ekki fyrir og er talið að rannsóknin muni standa yfir í nokkra mánuði. Tekið var fram að lofthæfisvottun flugvélarinnar hafi verið í lagi, flugmennirnir hafi verið hæfir á flugvélategundina og þjálfaðir samkvæmt reglugerðum og hafi þeir fylgt öllum fyrirmælum og verklagsreglum frá Boeing.

Í bráðabirgðarskýrslunni er flugvélaframleiðandinn hvattur til þess að stjórnkerfi Boeing 737 MAX þotunnar séu endurskoðuð og lagfært áður en vélarnar fá leyfi til þess að hefja sig til lofts á ný.

Tewolde Gebremariam, framkvæmdarstjóri Ethiopian Airlines, segir að allir starfsmenn flugfélagsins séu enn að ganga í gegnum mikla sorg í kjölfar slyssins og segist hann vera stoltur af flugmönnum vélarinnar sem reyndu sitt besta til þess að ná stjórn á flugvélinni alveg fram á síðustu stund.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga