flugfréttir

Stefnt að því að endurvekja WOW air

- Ætla að byrja með fjórar Airbus A321neo þotur og eina A320neo þotu

4. apríl 2019

|

Frétt skrifuð kl. 13:33

Flugvélar WOW air á Keflavíkurflugvelli

Helstu stjórnarmeðlimir WOW air auk Skúla Mogensen, stofnanda félagsins, sem varð gjaldþrota þann 28. mars, eru sagðir vera að undirbúa endurreisn flugfélagins.

Aðeins er vika frá því að tilkynnt var um að allur rekstur WOW air hefði stöðvast en eftir að eigendur Airbus-flugfélanna kyrrsettu vélarnar í Ameríku var ljóst að dagar WOW air voru taldir og var félagið tekið til gjaldþrotaskipta.

Fátt hefur verið eins mikið á vörum landsmanna sl. daga og brotthvarf WOW air af flugmarkaðnum en samkvæmt frétt Fréttablaðsins í dag kemur fram að Skúli Mogensen ásamt lykilstarfsmönnum séu að leita að fjármögnun upp á 4.8 milljarða króna til þess að endurvekja WOW air og hefja reksturinn að nýju.

Í tilkynningu kemur fram að stefnt sé að byrja reksturinn með fimm Airbus-þotum eftir að búið verður að sækja um nýtt flugrekstrarleyfi og er áætlað að flotinn muni telja fjórar A321neo þotur og eina af gerðinni Airbus A320neo og verði fyrsta verkefnið að sinna leiguflugi fyrir stórt evrópskt flugfélag í júlí í sumar áður en byrjað verður á ný að fljúga reglubundið áætlunarflug aftur frá Keflavík.

Byrja með 13 áfangastaði í Evrópu og Bandaríkjunum

Stefnt er á að byrja með sjö flugvélar í flotanum vorið 2020 og er 13 áfangastaðar nefndir frá Keflavíkurflugvelli en þeir sem til greina komi eru Alicante, Tenerife, Frankfurt, Barcelona, London, París, Amsterdam, Berlín og Kaupmannahöfn og til Norður-Ameríku stendur til að fljúga til New York, Baltimore og Boston.

Í tilkynningu til fjárfesta kemur fram að Skúli auk lykilstarfsmanna munu eiga 51 prósent í nýja félaginu á meðan þeir fjárfestar, sem koma að fjármögnun félagsins, munu eiga 49 prósent.

Skúli Mogensen verður forstjóri félagsins en aðrir stjórnendur í félaginu eru Sveinn Ingi Steinþórsson, Jónína Guðmundsdóttir, Arnar Már Magnússon, Daníel Snæbjörnsson, Snorri Pétur Eggertsson, Páll Borg og Svanhvít Friðriksdóttir.

Í kynningu til fjárfesta kemur fram að WOW air teymið hafi lært sína lexíu og muni halda sig við hreinræktaða lággjaldastefnu. Auk kostnaðaraðhalds verði áhersla lögð á að auka beina sölu á vef flugfélagsins sem og viðbótartekjur þess.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga