flugfréttir
Uganda Airlines staðfestir pöntun í Airbus A330-800
Uganda Airlines hefur staðfest pöntun í tvær Airbus A330-800 breiðþotur sem er minni útgáfan af A330neo þotunni.
Örfá flugfélög pöntuðu A330-800 í upphafi en þeim fór fækkandi í kjölfar afpantanna en er Hawaiian Airlines dró sína pöntun til baka í febrúar í fyrra var ekkert flugfélag eftir á pöntunarlistanum.
Uganda Airlines lagði inn pöntun í þotuna fjórum mánuðum síðar og í október 2018 bættist Kuwait Airways við og eru því tvö flugfélög sem eiga von á minni útgáfunni af A330neo í dag.
Uganda Airlines hefur lítið gefið upp varðandi pöntunina fyrir utan að segja að A330-800 vélarnar tvær verða notaðar til þess að efla leiðarkerfi félagsins í flugi til fjarlægra áfangastaða.
Airbus A330-800 þotan er enn að ganga í gegnum vottunarferli.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.