flugfréttir
Öryggisleiðbeiningar í sætisvasa ruglaði farþega í ríminu
- Höfðu áhyggjur af því að þær væru að fljúga með Boeing 737 MAX
Southwest Airlines hefur beðið farþega sína afsökunar á því að öryggisleiðbeiningarnar hafi ruglað þá í rýminu
Einhverjir farþegar, sem voru að fljúga með Southwest Airlines um helgina, lýstu yfir áhyggjum sínum þar sem þeir héldu að þeir væru að fara að fljúga með Boeing 737 MAX þar sem spjöldin með öryggisleiðbeiningum um borð í sætisvösum voru merkt „Boeing 737 MAX“.
Farþegarnir voru hinsvegar að fljúga með Boeing 737-800 þotum og þurfti Southwest Airlines að senda frá sér
tilkynningu þar sem fram kom að félagið notaði sömu spjöld fyrir öryggisatriði um borð í Boeing 737 MAX og Boeing 737-800.
Einn farþegi skrifaði ummæli á samfélagssíðu Southwest og spurði hvort að Boeing 737 MAX þotur félagsins væru ekki
kyrrsettar eins og aðrar þotur sömu gerðar í heiminum.
Mynd af Twitter
Southwest svaraði farþegunum: „Þú varst ekki að fljúga með Boeing 737 MAX 8 þotu. Þú varst í Boeing 737-800“.
Southwest segir að spjöldin séu notuð fyrir fleiri en eina tegund af Boeing 737 og séu þær tegundir tilgreindar á spjaldinu
en flugfélagið bandaríska hefur einungis Boeing 737 þotur í flotanum af gerðinni 737-800, 737-700 auk Boeing 737 MAX.
Fjarlægðu spjöldin og settu ný eingöngu fyrir Boeing 737-800
Flugfélagið tók þá ákvörðun að fjarlægja spjöldin og koma fyrir leiðbeiningum sem eru aðeins merktar Boeing 737-800
en ekki kemur fram hvort félagið þurfi að prenta spjöld fyrir allar vélarnar.
Ef svo er þá hefur félagið 207 Boeing 737-800 þotur í flotanum sem taka 175 farþegar og þyrfti þá að prenta 36.335 spjöld.
Southwest Airlines biður farþega sína afsökunar ef þetta hefur valdið einhverjum ruglingi en Southwest er ekki eina
flugfélagið sem hefur valdið ruglingi með sameiginlegum leiðbeiningum fyrir Boeing 737 MAX og Boeing 737-800.
Að minnsta kosti einn farþegi, sem flaug með 737-800 þotu Norwegian, hafði einnig samband við flugfélagið vegna svipaðra efasemda þar sem Norwegian hafði einnig sömu spjöld með öryggisleiðbeningum fyrir 737 MAX og 737-800.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.