flugfréttir
EASA fyrirskipar skoðanir á hreyflablöðum á Trent 1000 TEN
Trent 1000 TEN hreyfillinn frá Rolls-Royce
Evrópsk flugmálayfirvöld (EASA) hafa gefið út fyrirmæli um að þeir flugrekendur sem hafa Boeing 787 í flota sínum, sem koma með Trent 1000 TEN hreyflum, framkvæmi skoðanir á hreyflablöðum vegna mögulegrar tæringar á blöðunum.
Rolls-Royce, sem framleiðir hreyflana, segir að við skoðun á nokkrum hreyflum hafi komið í ljós ótímabær tæring á hreyflablöðum og eru flugfélög hvött til þess að hraða skoðun á blöðum á sínum Trent 1000 TEN hreyflum.
Singapore Airlines tók nýlega nokkrar Dreamliner-þotur úr umferð af gerðinni Boeing 787-10 eftir að í ljós kom tæring
í blöðum í túrbínu-hluta hreyfilsins.
Hreyflablöð hafa sinn líftíma en Rolls-Royce segir að þessi tilvik séu að eiga sér stað of snemma og
sé unnið að því að koma með endurbættari tegund af blöðum á markaðinn snemma á næsta ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.