flugfréttir

Misheppnaður vatnsbogi virkjaði neyðarrennibraut

- Hlerinn í neyðarútgangnum skaust inn við háþrýstivatnsbununa

10. apríl 2019

|

Frétt skrifuð kl. 13:16

Á myndinni má sjá hvar neyðarrennibrautin er komin niður af væng vélarinnar

Bilun í búnaði á slökkviliðsbíl er kom að því að gera vatnsboga til heiðurs jómfrúarflugi á flugvellinum í Dubai í fyrra varð til þess að hleri á neyðarútgang á Airbus A320 þotu skaust inn í farþegarýmið sem virkjaði neyðarrennibraut vélarinnar.

Atvikið átti sér stað þann 20. september í fyrra er Airbus A320 þota frá Saudi Arabian Airlines var nýlent í Dubai eftir sitt fyrsta flug frá Jeddah og voru slökkviliðsbílar sem biðu vélarinnar til þess að mynda heiðursboga eins og siður er við jómfrúarflug og í tilefni af sérstökum flugferðum.

Tveir slökkvibílar biðu vélarinnar en slökkviliðsmenn á bílnum vinstra megin við vélina áttu í erfiðleikum með búnaðinn sem stjórnar dælubyssunni sem varð til þess að vatnsbunan lenti með miklum þrýstingi á búk vélarinnar við neyðarútganginn yfir vængnum með þeim afleiðingum að hlerinn skaust inn í farþegarýmið og við það fór neyðarrennibrautin af stað.

Flugmennirnir fengu viðvörun í stjórnklefa um að neyðarútgangurinn var opinn og að rennibrautin hefði farið úr hólfi sínu en að minnsta kosti einn farþegi af þeim 119 sem voru um borð hlaut meiðsli eftir að hafa fengið hlerann í höfuðið.

Flugvélin var dregin að hliði þar sem farþegar gengu frá borði og fóru flugvirkjar að vélinni til að framkvæma skoðun en í ljós kom að engar skemmdir urðu á vélinni að öðru leyti og var hleranum komið aftur fyrir.

Þotan fór í loftið frá Dubai aftur 6 klukkustundum síðar með enga farþega um borð og var þotunni flogið til Sádí-Arabíu á undanþágu þar sem rennibrautin var ekki nothæf ef til nauðlendingar kæmi.

Við nánari athugun kom í ljós bilun í kerfi sem stjórnar dælunni á slökkvibílnum sem varð til þess að slökkviliðsmennirnir áttu í vandræðum með að stjórna buninni þegar flugvélin kom inn á stæðið þegar mynda átti heiðursbogann.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga