flugfréttir
Gátu ekki sett inn leiðina til Flórens og flugu til Bologna
- Ekki var búið að uppfæra FMS flugtölvuna fyrir jómfrúarflugið
Flugið var flogið með þotu af gerðinni Airbus A319
SAS (Scandinavian Airlines) flaug í dag sitt fyrsta flug til Flórens á Ítalíu frá Kaupmannahöfn en það væri ekki frásögum færandi nema fyrir þær sakir að jómfrúarflugið endaði í Bologna sem er 80 kílómetrum norðan við Flórens.
Ekki var vandamálið að flugmennirnir höfðu ekki villst af leið en ástæðan er rakin til þess að ekki var búið að uppfæra
flugtölvuna með flugleiðinni og aðfluginu að Amerigo Vespucci flugvellinum í Flórens.
Flugmennirnir urðu varir við vandamálið er þeir voru að undirbúa brottför frá flugvellinum í Kaupmannahöfn og sáu
þeir að ekki var í boði að velja staðlað aðflug fyrir flugvöllinn.
Hluti af undirbúningi fyrir hvert áætlunarflug á stærri flugvélum er að setja inn flugleiðina í flugtölvuna, sem á ensku nefnist FMS (Flight Management System), þar sem flugvöllur á áfangastað er valinn með ICAO-kóða, flugbraut og svokölluðu STAR-aðflugi sem stendur fyrir „Standard Terminal Arrival Route“.
MCDU flugvölva á Airbus A320
Þegar kom að því að velja kóðann fyrir Flórens-flugvöll, sem er LIRQ, kom í ljós að ekki var hægt að setja inn rétta flugleið til flugvallarins í gagnagrunninum sem heldur utan um flugvelli, aðflug og siglingavita og var því ógjörningur að fljúga rétta flugleið eftir flugtölvunni.
Fluginu var seinkað á meðan málið var skoðað í samráði við flugrekstrardeild SAS og var lokaniðurstaðan sú að fara í loftið
í stað þess að fella niður flugið með tilheyrandi óþægindum fyrir farþega.
Ákveðið var að fljúga þessl í stað til flugvallarins í Bologna sem er 80 kílómetrum norðan við flugvöllinn í Flórens.
Talsmaður SAS segir að um mjög neyðarlegt vandamál hafi verið að ræða sem skrifast á mannleg mistök en farþegum var ekið til Flórens í rútum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.