flugfréttir
Fór út af braut í flugtaki í Nepal
- Þrír látnir í flugslysi við flugvöllinn í Lukla
Frá slysstað í dag við Lukla-flugvöllinn í Nepal
Að minnsta kosti þrír eru látnir eftir flugslys í Nepal eftir að lítil farþegaflugvél af gerðinni Let L-410 Turboprop fór út af flugbraut í flugtaki frá flugvellinum í Lukla og hafnaði á kyrrstæðri þyrlu.
Til stóð að ferja flugvélina, sem var frá flugfélaginu Summit Air, til Ramechhap-flugvallarins og voru þrír um borð í vélinni
en einn um borð í flugvélinni lést af sárum sínum á meðan tveir létu lífið sem urðu fyrir flugvélinni á þyrluflugpalli sem staðsettur er norðan við brautina.
Flugvélin var nýfarin í flugtaksbrun er hún fór hægra megin út af brautinni og endaði á kyrrstæðri þyrlu af gerðinni
Eurocopter AS 350B3e frá fyrirtækinu Manang Air en bæði þyrlan og Let L-410 flugvélin voru gjörónýtar eftir áreksturinn.
Að sögn Summit Air þá voru engir farþegar um borð í flugvélinni og þá kemur fram að flugstjórinn hafi slasast á meðan flugmaðurinn lést í kjölfar slyssins auk þyrluflugmanns frá Manang Air.
Þrír voru um borð í Let L-410 flugvélinni en annar flugmaðurinn lést í slysinu
Let L-410 flugvélin var 6 ára gömul og var hún upphaflega í eigu rússneska fyrirtækisins PANH en var afhent til Summit
Air árið 2017 en flugfélagið hefur þrjár aðrar Let-flugvélar af sömu gerð í flotanum.
Summit Air, sem áður hét Goma Air, var stofnað árið 2011 og flýgur félagið til 12 áfangastaða í Nepal frá Kathmandu-flugvelli
og þar á meðal til Lukla sem hefur lengi verið talinn einn af hættulegustu flugvöllum heims.
Frá stofnun Summit Air (Goma Air) fyrir 8 árum síðan hafa átt sér stað fjögur flugslys og atvik í sögu félagsins og þar af tvö
á flugvellinum í Lukla.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.