flugfréttir

Flugvélaleiga tekur níu þotur af Avianca Brasil

- Bannað að lenda á brasilískum flugvöllum nema að greitt sé fyrirfram

15. apríl 2019

|

Frétt skrifuð kl. 11:27

Airbus A320 þota Avianca Brasil

Brasilíska flugfélagið Avianca Brasil, dótturfélag kólumbíska flugfélagsins Avianca, er nú komið í mikla fjárhagserfiðleika og og þurfti félagið sl. föstudag að fella niður 179 flugferðir á næstu fimm dögum eftir að flugvélaleiga tók af félaginu níu þotur.

Avianca hefur farið með málið fyrir dómstóla í von um að geta haft flugvélarnar áfram í flotanum en þar sem flugfélagið hefur ekki greitt leigugjöld af flugvélunum fékk flugvélaleigan Aircastle leyfi til þess að sækja flugvélarnar sínar í gær.

Flestar flugferðirnar sem Avianca Brasil hefur þurft að fella niður eru áætlanarflug milli Sao Paulo og Rio de Janeiro sem er ein fjölfarnasta flugleið félagsins.

Þá hafa nokkrir flugvellir í Brasilíu bannað Avianca Brasil að lenda á flugvöllunum þar sem félagið skuldar einnig lendingargjöld og hefur félagið náð að fljúga til einhverja flugvalla með því skilyrði að félagið greiði lendingargjöld sín fyrirfram.

Félagið sótti um gjaldþrotameðferð í desember 2018 en skuldir félagsins hafa haldið áfram að aukast. Lausafjárstaða félagsins hefur verið mjög lág frá því í mars og hefur félagið til að mynda ekki náð að greiða starfsmönnum sínum laun.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga