flugfréttir
Prófunum með MCAS-kerfið á Boeing 737 MAX lokið
- Vottunarferli tekur næst við
Boeing 737 MAX tilraunarþota Boeing í lendingu
Síðasta tilraunaflugið með Boeing 737 MAX vegna uppfærslu á stjórnkerfi vélarinnar sem snýr að MCAS-kerfinu er lokið hjá Boeing og er þotan tilbúin í að gangast næst undir vottunarferli.
Dennis Muilenburg, framkvæmdastjóri Boeing, segir á Twitter-síðu sinni að ekki sé komin nein dagsenting varðandi
hvenær Boeing 737 MAX getur flogið á ný en síðustu flugprófanirnar eru þó vísir að því að miklum árangri hafi verið náð.
Alls hafa verið gerðar 120 prófanir með Boeing 737 MAX þotuna eftir að uppfærslan á MCAS-kerfinu varð tilbúin og telja tilraunaflugin alls 203 klukkustundir á flugi.
Síðastliðinn þriðjudag gáfu bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) út fyrirmæli með breytingum á þjálfun flugmanna á Boeing 737
MAX í tengslum við nýju uppfærsluna og þá sérstaklega með það að leiðarljósi að flugmenn geri sér nákvæmlega grein
fyrir því hvernig MCAS-kerfið virkar.
FAA hefur fylgst með gangi mála varðandi uppfærsluna og þær prófanir sem gerðar hafa verið á kerfinu og segir
nefndin að kerfið sé nú orðið „hæft til notkunar“.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.