flugfréttir
Aukin eftirspurn eftir langdrægari mjóþotum
- Sagt að Airbus sé byrjað að selja Airbus A321XLR til viðskiptavina
Christian Scherer tók við stöðu sölustjóra Airbus í september í fyrra
Svo virðist vera að Airbus sé búið að ákveða að hrinda úr vör enn langdrægari útgáfu af Airbus A321neo ef marka má orð Christian Scherer sem tók nýlega við stöðu sölustjóra Airbus.
Scherer sagði í nýlegu viðtali að Airbus hafi orðið vart við vaxandi eftirspurn eftir langdrægari útgáfu af Airbus A321 þotunni
sem endurspegli áform flugfélaga um að fljúga meðalstórum farþegaþotum enn lengri vegalengdir milli áfangastaða þar sem breiðþotur hafa oftast þótt hentugri kostur.
„Við erum að ná að selja enn meira flugdrægi með Airbus A321 og viðskiptavinir okkar segja: „Við viljum meira drægi“, og
við svörum því: „Við munum gefa ykkur mesta flugdrægi sem við getum með Airbus A321, hversu mikið viltu?“, það er
það sem við svörum þeim“, segir Scherer.
Ummæli Scherer eru sterk vísbending um að Airbus sé að fara að koma með Airbus A321XLR á markaðinn sem verður
enn langdrægari útgáfa af Airbus A321LR sem er langdræg útgáfa af A321neo.
Þá eru heimildir fyrir því að Airbus sé nú þegar búið að ná einhverjum viðskiptavinum sem ætla að panta A321XLR þrátt
fyrir að ekki sé búið að hrinda þeirri þotu formlega úr vör.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.