flugfréttir

Cirrus SF50 Vision einkaþotan kyrrsett af FAA

- Senda frá sér neyðarfyrirmæli vegna vandamáls með áfallshornsskynjara

19. apríl 2019

|

Frétt skrifuð kl. 15:24

Cirrus SF50 Vision einkaþotan á flugi

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa farið fram á að allar þotur af gerðinni Cirrus SF50 Vision verði kyrrsettar en lofthæfisreglugerð og fyrirmæli þess efnis voru gefin út í dag af stofnuninni.

Ástæðan sem liggur að baki kyrrsetningarinnar snýr að áfallshornsmælum þotunnar („Angle of Attack Indicator“) og var gripið til þess ráðs að senda út fyrirmælin í kjölfar þriggja atvika sem hafa átt sér stað þar sem ofris- og viðvörunarkerfi (SWPS) sendu frá sér viðvörun þegar ekki var ástæða til en seinasta atvikið átti sér stað í þessum mánuði.

„Þessar aðstæður geta verið hættulegar bæði fyrir flugmenn og þá farþega sem eru um borð í Cirrus SF50 Vision þotunni þar sem að inngrip flugmanns til að bregðast við viðvörun af þessari gerð með því að beina nefi vélarinnar niður á við, þegar ekki er ástæða til, getur verið varasöm og er farið fram á að skoðun fari fram á áfallshornsskynjurum á þessum þotum og skipt um þá ef nauðsyn krefur“, segir í tilkynningu frá FAA.

Stjórnklefinn í Cirrus SF50 Vision þotunni

Í lofthæfisfyrirmælunum kemur fram að SWPS eða ESP kerfið geta mögulega farið í gang þrátt fyrir að nægur flughraði sé til staðar með viðeigandi áfallshorni en SWPS kerfið kemur með viðvörunarhljóði gegn ofrisi, stýrishristara og kerfi sem ýtir stýrinu niður á við.

ESP kerfið á Cirrus SF50 Vision þotunni, sem hannað er af fyrirtækinu Garmin, kemur með lághraðavörn („under speed protection“) og SWPS kerfi, sem fer í gang sem gefur flugmönnum skilaboð um virkjun kerfisins auk hljóðmerkis og stýrishristings.

Þá mun falskt boð frá kerfinu einnig sýna flugmanninum rautt band á stjórnskjám þotunnar sem táknar að flughraða þotunnar sé orðin hættulega lítill og sé að nálgast ofrishraða þrátt fyrir að flughraði vélarinnar sé með eðlilegum hætti.

Fyrsta Cirrus SF50 Vision einkaþotan var afhent árið 2016







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga