flugfréttir
Aeroflot pantar 35 Irkut MC-21 þotur til viðbótar
MC-21-300 tilraunarþota Irkut
Rússneski flugvélaframleiðandinn Irkut hefur fengið pöntun frá Aeroflot í 35 farþegaþotur til viðbótar af gerðinni MC-21.
Flugvélarnar þrjátíu og fimm verða allar teknar á leigu en flugfélagið rússneska hafði áður lagt inn pöntun
í fimmtíu Irkut MC-21-300 þotur sem félagið á von á að fá afhentar eftir árið 2021.
MC-21 þotan hefur að undanförnu gengist undir flugprófanir en viðskiptavinum stendur til boða að panta flugvélina
með PW1000G hreyflum frá Pratt & Whitney eða með rússnesku PD-14 hreyflunum sem framleiddir eru af United Engine Corporation.
Irkut flugvélaframleiðandinn hefur í dag fengið pantanir í 175 eintök af MC-21 þotunni frá 15 viðskiptavinum
sem allir eru frá Rússlandi að einum undanskildum sem er Azerbaijan Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.