flugfréttir

United Airlines kynnir nýtt útlit

- Gyllti liturinn hverfur en hnötturinn frá Continental heldur sér

24. apríl 2019

|

Frétt skrifuð kl. 21:07

Fyrsta flugvélin sem var máluð í nýja búningnum var frumsýnd í dag í Chicago en hún er af gerðinni Boeing 737-800

Bandaríska flugfélagið United Airlines kynnti í dag nýtt útlit og var fyrsta flugvélin, sem máluð hefur verið í nýjum búningi, frumsýnd við hátíðlega athöfn á flugvellinum í Chicago.

Flugfélagið Continental Airlines sameinaðist rekstri United Airlines árið 2010 en við það var allur flugfloti United málaður í sameiginlegum litum og arfleiddi Untied að mestu leyti flugvélabúning Continental.

Í 9 ár hefur United Airlines notast við sameiginlega útlitið sem var upphaflega hannað af Lippincott árið 1991.

Nýja útlitið heldur þó ennþá hnettinum í stélinu en gyllti liturinn hefur verið fjarlægður í burtu sem var aðalmerki Continental og blái liturinn orðin aðeins skærari auk þess sem hreyflanir eru orðnir kóngabláir.

Samanburður á nýja og gamla útlitinu

Þá hefur gyllta línan meðfram skrokknum fengið andlitslyftingu og er orðin blá og bogadregin líkt og nýjustu gylltu línurnar voru orðnar á Dreamliner-þotunum og Boeing 737 MAX vélunum og þá var grái liturinn undir búknum gerður aðeins ljósari.

Fyrstu myndum af nýja útliti United Airlines var lekið á Netið í gærkvöldi

Um fjóra mismunandi liti er að ræða sem mynda nýja útlitið sem allir koma úr United-stílnum en litirnir kallast United Blue, Rhapsody Blue, sem bætist við sem nýr litur, Sky Blue og Runway Gray en nýja útlitið var hannað af auglýsingastofunni PriestmanGoode í London.

Fram kemur að það geti tekið allt að 7 ár að mála allan flugflota United Airlines í nýja búningnum en félagið hefur 779 flugvélar í flota sínum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga