flugfréttir
Nánast allt flug hjá SAS liggur niðri vegna verkfalls
- 1.409 flugmenn í verkfall eftir að kjaraviðræður fóru út um þúfur
SAS aflýsti í morgun nánast öllum flugferðum sínum í dag
Nánast allt flug hjá SAS (Scandinavian) liggur nú niðri vegna verkfallsaðgerða meðal flugmanna hjá félaginu sem felldu niður störf sín víðsvegar um Skandinavíu eftir að kjaraviðræður fóru út um þúfur.
SAS felldi í morgun niður allar þær 673 flugferðir sem til stóð að fljúga í dag sem hefur mest áhrif á farþega sem áttu bókað flug frá frá flugvöllunum í Osló,
Stokkhólmi og í Kaupmannahöfn en alls hafa verkfallsaðgerðirnar í dag áhrif á 80.000 farþega.
Kjaraviðræður meðal flugmanna hafa staðið yfir frá því í mars og hafa þær viðræður að mestu leyti
gengið út á kauphækkun og breytinar á vinnutíma en flugmenn SAS fara fram á sambærileg
laun og gengur og gerist hjá öðrum flugfélögum.
SAS segir að kröfur flugmanna séu mjög ósanngjarnar en flugmenn félagsins hafa einnig áhyggjur
af framtíð sinni hjá félaginu þar sem fjöldi áhafna hjá SAS eru verktakar.
Starfsmaður SAS aðstoðar farþega á flugvellinum í Kaupmannahöfn
Talið er að verkfallsaðgerðir meðal þeirra 1.500 flugmanna, sem hafa fellt niður störf sín, kosti
flugfélagið nokkur hundruð milljónir króna á dag en nú þegar er verið að fella niður margar flugferðir
á morgun, laugardag, sem mun hafa áhrif á yfir 30.000 farþega og er óvissa með hvort felldar verði niður flugferðir á sunnudag.
Verkfallið hefur ekki áhrif á þau flug sem önnur flugfélög annast fyrir hönd SAS sem telur um 30 prósent
af öllum brottförum félagsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.