flugfréttir
Southwest sendir teymi til Evrópu til að skoða Airbus-þotur
- Eitt stærsta „Boeing 737 flugfélag“ heims útilokar ekki aðra kosti
Sagt er að teymi frá Boeing hafi farið til Evrópu til þess að skoða þær þotur sem Airbus hefur upp á að bjóða
Bandaríska flugfélagið Southwest Airlines hefur ýjað að því að ekki sé útilokað að skoða aðrar flugvélategundir í kjölfar vandamálsins með Boeing 737 MAX vélarnar en ekkert flugfélag í heiminum hefur pantað eins mörg eintök af 737 MAX líkt og Southwest sem er einn stærsti og traustasti viðskiptavinur Boeing.
Sagan segir að Southwest Airlines sé að senda nokkra aðila til þess að kynna sér kosti Airbus A220
þotunnar sem Airbus hefur upp á að bjóða sem var upphaflega smíðuð af Bombardier sem CSeries-þotan.
Southwest hefur verið eitt stærsta Boeing-flugfélag Bandaríkjanna og haft eingöngu
Boeing 737 þotur í flotanum í hálfa öld eða allt frá stofnun félagsins árið 1966.
Garry Kelly, framkvæmdarstjóri Southwest, gaf það í skyn í nýlegu viðtali að félagið væri til í að skoða
hvað annað væri í boði fyrir félagið sem hefur reitt sig alfarið á Boeing 737 frá árinu 1971
þegar fyrsta áætlunarflugið var farið.
Garry Kelly, framkvæmdarstjóri Southwest Airlines
Kelly sagði í viðtali í gær í Dallas að þótt það væri ekki á döfunni að bæta annarri flugvélategund við
í flota Southwest þá væri ekkert öruggt að þeir muni hafa aðeins þessa einu flugvélategund til eilífðar.
“Vandamálið með MAX-inn hefur ekki verið nein hamingja fyrir okkur“
„Það er augljóst að staðan með MAX-flugvélarnar hefur ekki beinlínis verið einhver hamingja
fyrir okkur. Við erum „Boeing 737 flugfélag“ og höfum alltaf verið - en það þýðir ekki að við verðum
það endalaust“, segir Kelly en í öðru viðtali í vikunni sagði framkvæmdarstjórinn að félagið sé að skoða hvað er að gerast hjá samkeppnisaðilum Boeing.
Kelly tekur það fram að Southwest Airlines hafi fulla trú á Boeing 737 MAX en félagið á von á því að fá 276 eintök af þeirri
þotu í flotann á næstu árum af gerðinni Boeing 737 MAX 7 og MAX 8 og hefur félagið nú þegar tekið við 34 þotum.
Southwest hefur fengið 34 Boeing 737 MAX þotur afhentar
Nokkrir erlendir flugfréttamiðlar greindu frá því á miðvikudag að Southwest hafi sent teymi
til Airbus í Evrópu til að kynna sér Airbus A220 þotuna sem mörgum þykir tíðindi þar sem félagið
er hliðhollasti viðskiptavinur Boeing og vilja einverjir sérfræðingar meina að Boeing 737 MAX málið
hafi aðeins vaggað bátnum er kemur að nánu og löngu sambandi milli Southwest og Boeing.
“Miklar líkur á að við verðum áfram Boeing-flugfélag“
„Við höfum engin áform um að breyta okkar áætlunum. En, eins og margir aðrir, þá erum við
stanslaust að skoða hvað er í boði á markaðnum. Við höfum verið Boeing-flugfélag öll þessi ár
og ég held að það séu miklar líkur á að við verðum það áfram“, sagði Kelly fyrr í þessari viku.
Airbus A220 þotan í litum Delta Air Lines sem er eina bandaríska flugfélagið sem hefur pantað þotu af þeirri gerð
Southwest var fyrsta flugfélagið í heimi til þess að fljúga Boeing 737-300 þotunni er hún kom á markað
árið 1984 og einnig 737-500 tegundinni sem kom á markað árið 1990 en félagið byrjaði með
Boeing 737-200 þotuna árið 1971.
Á tíunda áratugnum gerði Emeritus Herb, þáverandi forstjóri Southwest Airlines, óformlegt samkomulag
við Boeing er félagið fékk sína fyrstu Boeing 737-700 þotu afhenta, um að „ekkert flugfélag á þessari
jörðu mun fá Boeing 737 á eins hagstæðum kjörum og Southwest“ og er sagt að það samkomulag
hafi verið innsiglað með handabandi.
Southwest Airlines hefur flogið Boeing 737 þotum alla sína tíð frá árinu 1971
Boeing 737 MAX floti Southwest Airlines er kyrrsettur á Victorville-flugvellinum
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.