flugfréttir
Emirates verður af tekjum vegna lokun flugbrautar í Dubai
- Ætla ekki að færa sig yfir á nýja Dubai World Central flugvöllinn
Frá flugvellinum í Dubai
Emirates segir að félagið sé búið að verða fyrir töluverðum tekjumissi vegna framkvæmda á flugbrautinni á flugvellinum í Dubai en önnur brautin á vellinum er alveg lokið á meðan verið er að skipta um yfirlag hennar sem mun taka nokkrar vikur.
Mest hafa framkvæmdirnar bitnað á leiðarkerfi Emirates í seinustu viku er páskaumferðin stóð sem
hæðst en Tim Clark, forstjóri Emirates, segir að Ramadan nálgast nú óðfluga
og þurfi félagið að gera ráðstafanir vegna þessa.
Félagið hefur þurft að fella niður 135 flugferðir á viku þar sem aðeins ein flugbraut er á Dubai-flugvellinum þessa daganna en framkvæmdum lýkur í lok maí.
Emirates mun meðal annars draga úr tíðni á flugi til Kaupmannahafnar, Bretlands, Sviss og Spánar
auk þess sem félagið mun fljúga færri ferðir til áfangastaða í Asíu og í Bandaríkjunum.
Emirates hefur verið staðráðið í að færa sig ekki yfir á nýja Dubai World Central (DWC) flugvöllinn
líkt og flest önnur flugfélög hafa gert en meðal flugfélaga sem hafa flutt sig á nýja flugvöllinn frá því hann opnaði árið 2010 eru flydubai, Nepal Airlines, Nordwind Airlines, TUI fly
Deutchland, Ural Airlines og Wizz Air.
Clark segir að afkoma Emirates fyrir árið 2019 verði þó ekki í samræmi við fyrri spár þar sem hátt
verð á þotueldsneyti sé meðal þátta sem á eftir að hafa meiri áhrif á reksturinn heldur en framkvæmdirnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.