flugfréttir

Ætla að taka 737 MAX 10 og Dreamliner í stað 737 MAX 8

30. apríl 2019

|

Frétt skrifuð kl. 18:54

Boeing 737 MAX 8 þota Garuda Indonesia

Indónesíska flugfélagið Garuda Indonesia segist ætla að skipta út þeim Boeing 737 MAX 8 þotum, sem félagið hafði pantað, fyrir aðrar tegundir af farþegaþotum frá Boeing.

Garuda Indonesia var fyrsta flugfélagið til að hætta við pöntun í Boeing 737 MAX 8 í kjölfar flugslysanna tveggja í mars og í október í fyrra en félagið hafði pantað 50 þotur ef þessari gerð.

Þess í stað ætlar Garuda Indonesia að panta Boeing 737 MAX 10 og Dreamliner-þotur en Ari Ashkara, forstjóri félagsins, segir að verðmæti nýju pöntunarinnar sé svipuð og upprunalega pöntunin. Ashkara tekur fram að flugfélagið hafi enn fulla trúa á Boeing og þeim flugvélum sem framleiðandinn framleiðir.

Garuda Indonesia pantaði 50 Boeing 737 MAX 8 þotur árið 2014 en félagið hafði aðeins tekið við einni þotu rétt fyrir seinna slysið hjá Ethiopian Airlines.

Boeing 737 MAX 10 hefur ekki eins langt flugdrægi líkt og Boeing 737 MAX 8 en flugfélagið mun þó ná að koma fleiri farþegum fyrir um borð í þeim vélum. Félagið ætlar sér að nota Dreamliner-þoturnar í langflug til nýrra áfangastaða sem er hluti að auknum umsvifum félagsins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga