flugfréttir

Auglýsir eftir skrúfu af Pitts sem losnaði af í 7.500 fetum

- Sá sem finnur skrúfuna er beðin um að hafa samband við flugmanninn

30. apríl 2019

|

Frétt skrifuð kl. 22:11

Spencer Suderman óskar eftir því að sá sem finnur skrúfuna af Pittsinum megi endilega hafa samband við sig

Flugmaður einn í Bandaríkjunum lenti í þeim óskemmtilega atviki sl. laugardag að loftskrúfan losnaði af mótor á listflugvél sem hann flaug er hann var á flugi rétt norður af Los Angeles.

Spencer Suderman var í 7.500 fetum yfir San Fernando dalnum, skammt norður af Los Angeles, á leið til Yuma í Arizona er skrúfan losnaði skyndilega af Pitts S-1C tvíþekjunni hans.

Suderman var staddur aðeins tvær mílur suður af Whiteman-flugvellinum er skrúfan fór af og lýsti hann yfir neyðarástandi.

Flugumferðarstjóri spurði hann hvort hann þyrfti á aðstoð frá neyðarteymi að halda en hann fór einungis fram á að vita vindstyrk og vindátt á vellinum og óskaði eftir að fá að koma beint inn til lendingar.

Færslan á Facebook-síðu Spencer Sudermans

Whiteman-flugvöllurinn er í 1.000 feta hæð yfir sjávarmáli og hafði Suderman því um 6.500 fet til þess að undirbúa sig fyrir lendinguna með ekkert afl.

Aðrir listflugmenn hafa sagt að er Pitts missir mótor þá geti hann farið álíka hratt til jarðar og múrsteinn og hafi því ekki verið ólíklegt að hæðarmælavísirinn hafi snúist hratt á mælinum þar sem þeir eru hannaðar með lipurð í huga frekar en stöðugleika.

Suderman tókst að lenda flugvélinni giftusamlega á Whiteman-flugvellinum en hann hefur töluverða reynslu að baki sem listflugmaður og hefur komist á síður Heimsmetabókar Guinness fyrir flesta spuna á hvolfi í einu flug eða alls 98 stykki sem hann tók árið 2016.

Suderman setti færslu á fésbókarsíðu sína þar sem hann skrifaði: „Ef einhver finnur skrúfuna mína einhversstaðar í norðurhlutanum í San Fernando dalnum þá má sá hinn sami endilega láta mig vita“.

Flugmaðurinn lét að sjálfsögðu fylgja með sjálfsmynd af sér með Pitts-flugvélina í baksýn skrúfulausa.

Fleiri myndir:















  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga