flugfréttir

Flugfélag á Hawaii gerir tilraunir með rafmangsflugvélar

- Munu hefja áætlunarflug milli eyjaklasans með rafknúnum flugvélum

2. maí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 12:18

Cessna Grand Caravan flugvélar Mokulele Airlines

Flugfélag eitt á Hawaii-eyjum stefnir á að hefja tilraunir með rafmagnsflugvélar í áætlunarflugi milli eyjanna í haust á þessu ári.

Mokulele Airlines er eitt af þeim flugfélögum sem heldur uppi áætlunarflugi á eyjaklasanum og ætlar félagið að prófa að byrja að fljúga með farþega með hybrid-rafmagnsflugvélum milli Kahului og Hana í september eða október í haust í samvinnu við bandaríska fyrirtækið Ampaire í Los Angeles.

Ampaire segir að fyrirtækið hafi verið í sambandi við önnur flugfélög í Evrópu og í Karíbahafinu en Mokulele Airlines var kjörið flugfélag til þess að fara í samstarf við þar sem flug milli eyjanna á Hawaii er tilvalin vettvangur til þess að gera prófanir með flugvél með mótor sem knúinn er áfram með rafmagni.

Mokulele Airlines hefur í dag sextán flugvélar í flota sínum sem samanstendur að mestu leyti af flugvélum af gerðinni Cessna Grand Caravan en félagið hefur einnig tvær Pilatus PC-12 flugvélar.

Sú flugvél, sem notuð verður fyrir verkefnið, mun koma með sæti fyrir níu farþega og mun hún hafa nægt flugdrægi til að passa inn í leiðarkerfi Mokulele Airlines og einnig fyrir lengsta flug félagsins sem er frá Kahului til Honolulu sem eru 89 mílur (nm).







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga