flugfréttir
FAA setur bann við öllu flugi til Venezúela
- Bandarískum flugfélög skipað að forðast að fljúga til landsins
Frá Simón Bolívar flugvellinum í höfuðborginni Caracas
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa bannað bandarískum flugfélögum að fljúga til Venezúela þar sem ástandið í landinu hefur versnað til muna upp á síðkastið og með daglegum uppþotum á götum út.
Um neyðarskipun er að ræða en skipunin felur í sér bæði bann við flugi flugvéla á bandarískri skráningu til landins auk þess sem flugvélum er bannað að fljúga í gegnum lofthelgi Venezúela undir 26.000 feta hæð af ótta við loftskeytaárásir.
Þann 30. apríl var gefið út NOTAM þar sem öllum bandarískum flugvélum var bannað að fljúga til landsins auk þess
sem flugmenn, með bandarískt flugmannsskírteini, gefið út af FAA, var gert að koma sér úr landinu innan 48 klukkustunda.
Fá bandarísk flugfélög voru eftir sem héldu uppi áætlunarflugi til Venezúela en American Airlines var eina bandaríska
flugfélagið sem var eftir sem flaug til landsins en félagið hætti öllu áætlunarflugi til Caracas í mars.
Meðal flugfélaga, sem hafa hætt að fljúga til Venezúela vegna ástandsins í landinu, eru American Airlines, Delta,
Lufthansa, LATAM, United Airlines, British Airways, Air Canada, Alitalia, Aeroméxico auk annarra flugfélaga.
American Airlines lýsti því yfir að það væri orðið mjög áhættusamt að fljúga til landsins og hættulegt fyrir áhafnir að dvelja þar
en einu bandarísku flugfélögin, sem höfðu flogið áfram til landsins í leiguflugi, voru Swift Air og World Atlantic en
þau hafa fellt niður allt flug til landsins eftir að skipunin var gefin út af FAA.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.