flugfréttir
Icelandair gerir ekki ráð fyrir Boeing 737 MAX í júní
- Sjá fram á að kyrrsetningin eigi eftir að ílengjast fram á mitt sumar
TF-ICU („Dyrhólaey“) í flugtaki á flugvellinum í Manchester í febrúar á þessu ári
Icelandair hefur tilkynnt að Boeing 737 MAX þotur félagsins munu ekki fljúga á ný í júní eins og vonast var til þar sem kyrrsetning flugvélanna mun að öllum líkindum dragast á langinn.
Í byrjun apríl tilkynnti Icelandair um breytingar á flugáætlun sinni til að bregðast við kyrrsetningunni en til að lágmarka
þau áhrif sem kyrrsetningin gæti haft í för með sér í sumar var ákveðið að taka á leigu tvær þotur, eina af gerðinni
Boeing 757 og eina breiðþotu af gerðinni Boeing 767.
Vonir voru bundnar við að Boeing 737 MAX myndi fljúga á ný um miðjan júní en félagið hefur uppfært flugáætlun sína
og er ekki útlit fyrir að 737 MAX þoturnar muni fljúga á ný fyrr en í fyrsta lagi um miðjan júlí.
Þrjár af þeim nýju Boeing 737 MAX þotum sem bíða afhendingar á athafnasvæði Boeing í Renton / Ljósmynd: Peter Schneider
Við þessar breytingar dregst sætaframboð tímabilsins saman um 2% og lögð verður áhersla á að tryggja að sem minnsta
röskun verði á leiðarkerfinu á þessum tíma.
Hafa fengið fimm Boeing 737 MAX þotur afhentar
Óvíst er hver fjárhagsleg áhrif kyrrsentingarinnar verður en til að mynda er ekki enn vitað hversu mikið af þeim kostnaði sem hlýst af kyrrsetningunni fæst bættur frá framleiðanda.
Icelandair hefur fengið fjórar Boeing 737 MAX 8 þotur afhentar og eina af lengri gerðinni, 737 MAX 9, en sjö
vikur eru liðnar frá því að þotan var kyrrsett í flest öllum löndum í heiminum.
Icelandair fékk fyrstu Boeing 737 MAX þotuna afhenta þann 2. mars í fyrra sem var TF-ICE og var fyrsta áætlunarflugið
með „Maxinum“ flogið þann 13. apríl sem var jómfrúarflug til Newark-flugvallarins í Bandaríkjunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.