flugfréttir

Um 318.000 farþegar flugu með Icelandair í apríl

6. maí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:22

Boeing 757-300 þota Icelandair

Alls voru 318.000 farþegar sem flugu með Icelandair í aprílmánuði sem leið sem er 19 prósent fleiri farþegar samanborið við apríl í fyrra.

Um þriðjungur farþega, eða 38%, voru tengifarþegar sem millilentu í Keflavík til þess að halda áfram til Norður-Ameríku eða Evrópu en þeir voru 123.000 talsins.

Framboð Icelandair jókst um 8% í apríl og sætanýtingin mældist 83,7 prósent sem er 6,5% aukning frá því í apríl í fyrra þegar sætanýtingin var 77.2%.

Ferðamannamarkaðurinn til Íslands var stærsti markaður félagsins í mars með 40% af heildarfarþegafjölda.  Farþegum á þessum markaði fjölgaði um 39 þúsund á milli ára eða 44%.  Farþegum fjölgaði einnig mikið á heimamarkaðinum frá Íslandi eða um 24 þúsund sem samsvarar 56% aukningu á milli ára. 

Bombardier Dash 8 Q400 flugvél Air Iceland Connect

Fjöldi fluttra farþega á N-Atlantshafinu dróst aftur á móti saman á milli ára um tæp 13 þúsund eða 9%. Komustundvísi í leiðakerfi félagsins í apríl nam 67% samanborið við 76% í apríl á síðasta ári.  Skýrist það af mikilli röskun sem varð á flugi vegna slæms veðurs á Íslandi í tvo daga.

Er kemur að Air Iceland Connect þá voru 22 þúsund farþegar sem flugu með félaginu og fækkaði þeim því um 20% á milli ára en það skýrist aðallega af flugi til Aberdeen og Belfast sem var lagt niður í maí á síðasta ári. 

Sætanýting nam 69,0% og jókst um 8,4 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 26% milli ára vegna færri verkefna en á sama tíma fyrir ári og viðhalds flugvéla. 







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga