flugfréttir
Hætta við að panta fleiri Sukhoi-þotur í kjölfar flugslyss
- Yamal Airlines hafði hugsað sér að panta tíu SSJ100 þotur til viðbótar
Sukhoi Superjet 100 þota Yamal Airlines
Eitt rússneskt flugfélag hefur hætt við áform um að panta tíu Sukhoi Superjet 100 þotur til viðbótar en félagið tilkynnti um þetta í morgun, daginn eftir flugslys sem átti sér stað í gær er þota sömu gerðar varð alelda við lendingu á Sheremetyevo-flugvellinum í Moskvu.
Flugvélin, sem var frá Aeroflot, fór í loftið frá Moskvu á leið til Murmansk þegar flugmenn vélarinnar
ákváðu að snúa við skömmu eftir flugtak en óstaðfestar heimildir herma að flugvélin hafi fengið eldingu í
sig í klifrinu.
Flugvélin varð alelda á brautinni og er talið að eldurinn hafi komið upp um borð fyrir lendingu en 41 lét
lífið af þeim 78 sem voru í flugvélinni.
Það er rússneska flugfélagið Yamal Airlines sem hefur ákveðið að hætta við fyrirhugaða pöntun
í þoturnar en félagið hefur fengið nú þegar afhentar 15 Sukhoi Superjet 100 þotur.
Flugfélagið tilkynnti afpöntunina aðeins nokkrum klukkustundum eftir að rússneski
samgönguráðherrann tilkynnti að ekki væri nein ástæða til þess að kyrrsetja þotunar sem
framleiddar eru í Rússlandi.
TASS fréttastofan hefur eftir Vasily Kryuk, yfirmanni Yamal Airlines, að félagið hafi ákveðið
að hætta við pöntunina á þeim forsendum að þjónustukostnaður við flugvélarnar væri
of hár.
Flak Sukhoi-þotunnar á Sheremetyevo-flugvellinum í gær
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.