flugfréttir

Líkur á að Emirates hætti við Dreamliner-þoturnar

- Gerðu samkomulag um að panta 40 Boeing 787-10 þotur árið 2017

13. maí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:05

Tölvugerð mynd af Boeing 787-10 í litum Emirates

Svo virðist sem að Emirates hafi hætt við pöntun sína í Dreamliner-þotur Boeing en flugfélagið hafði gert samkomulag um pöntun á fjörutíu þotum af gerðinni Boeing 787-10 á Dubai Air Show flugsýningunni árið 2017.

Emirates hefur ekki formlega tilkynnt að félagið hafi hætt við pöntunina en í afkomuskýrslu félagsins, sem kom út fyrir helgi, er hvergi minnst á Boeing 787-10 þoturnar sem Emirates hafði áður lýst yfir að myndu koma í flotann árið 2022 en í seinustu ársskýrslu, fyrir árið 2018, voru Boeing 787-10 þoturnar tilgreindar.

Í skýrslunni kemur fram að Emirates á von á 234 nýjum þotum á næstu árum sem samanstendur af 40 þotum af gerðinni Airbus A330-900, þrjátíu af gerðinni Airbus A350-900, fjórtán risaþotum af gerðinni A380 auk 150 Boeing 777X þotna.

Hinsvegar kemur hvergi neytt fram um neinar Dreamliner-þotur en pöntun Emirates til Boeing í 40 Boeing 787-10 þotur er metin á 1.819 milljarða króna.

Pöntunin var aldrei formlega bætt við á lista Boeing yfir þær þotur sem pantaðar hafa verið en sérfræðingar í flugmálum telja að Emirates ætli sér ekki að velja Boeing 787 þoturnar og halda sig frekar við Airbus A350 og Boeing 777 í stað Boeing 787.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga