flugfréttir
Lítil flugvél fórst við prófanir á aðflugsbúnaði í Dubai
Flugvélin sem fórst í gær var af gerðinni Diamond DA62 og í eigu breska fyrirtækisins Flight Calibration Services
Flugmálayfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum rannsaka nú flugslys sem átti sér stað í gær úti fyrir ströndum Dubai er lítil tveggja hreyfla flugvél af gerðinni Diamond DA62 fór í sjóinn í Persaflóa í aðfluginu að flugvellinum í Dubai.
Flugvélin, sem var í eigu breska fyrirtækisins Flight Calibration Services, var að framkvæma prófanir á aðflugsvitum
og siglingabúnaði fyrir Dubai-flugvöll þegar hún hrapaði í sjóinn í um 5 kílómetra fjarlægð frá flugvellinum.
Fjórir voru um borð í flugvélinni, þrír Bretar og einn Suður-Afríkubúi, og komst enginn lífs af. Fyrirtækið sér um að stilla og prófa vita- og aðflugsbúnað á jörðu niðri en verið var að gera prófanir á blindaðflugbúnaði (ILS) vallarins þegar slysið átti sér stað.
Flugvélin var að gera prófanir á aðflugsvitum á Dubai-flugvelli
Flight Calibration Services, sem hefur höfuðstöðvar í Shorham á Englandi, gerði samning við Dubai-flugvöll um prófanir
á aðflugsvitum fyrir flugvöllinn í nóvember árið 2018 og hefur fyrirtækið yfir að ráða fimm Diamond DA62 flugvélar og
eina Piper Chieftain flugvél.
Flugvélaframleiðandinn Diamond Aircraft segist harma slysið og muni framleiðandinn veita fullan stuðning við rannsókn
þess en orsök slyssins liggja enn ekki fyrir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.