flugfréttir
Optical Studio og Mathús hljóta þjónustuverðlaun Keflavíkurflugvallar
Isavia hefur síðustu ár verðlaunað rekstraraðila á Keflavíkurflugvelli fyrir framúrskarandi þjónustu.
Þjónustuverðlaun Isavia fyrir árið 2018 voru afhent við hátíðlega athöfn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni en að þessu sinni féllu þjónustuverðlaun verslana í hlut sjóntækjaverslunarinnar Optical Studio.
Þjónustuverðlaun veitingastaða hlaut Mathús, sem rekið er af Lagardére. Niðurstaðan nú, sem fyrr, byggir á markaðsrannsóknum og könnunum sem gerðar eru á Keflavíkurflugvelli.
Isavia hefur síðustu ár verðlaunað rekstraraðila á Keflavíkurflugvelli fyrir framúrskarandi þjónustu. Verslanir og veitingastaðir eru verðlaunaðir fyrir að skara fram úr í þjónustu við farþega sem fara um flugvöllinn.
Litið er meðal annars til þess hvernig afgreiðslufólk nálgast viðskiptavini og hvort bæði vörur og upplýsingar um verð séu aðgengilegar.
Isavia leggur áherslu á góða þjónustu við ferðafólk í flugstöðinni.
Rekstraraðilar eru í beinum tengslum við farþega og eru hvattir til að tryggja sem besta þjónustu. Liður í því eru þjónustunámskeið og verðlaun fyrir vel unnin störf.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.