flugfréttir

Fyrsta flug Voigt Travel og Transavia til Akureyrar

- Fyrsta flugið af þeim sextán sem Transavia skipuleggur til Akureyrar í sumar

27. maí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 19:33

Boeing 737 þota Transavia í lendingu á Akureyrarflugvelli í dag

Hollenska flugfélagið Transavia flaug í dag sitt fyrsta flug til Akureyrar en félagið flýgur hingað frá Rotterdam og er flugið á vegum hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel.

Flugið er það fyrsta af þeim sextán flugferðum sem Transavia mun fljúga til höfuðstaðar Norðurlands í sumar en við þetta tækifæri tilkynnti Cees van den Bosch, framkvæmdastjóri Voigt Travel að ákveðið hefði verið að fljúga frá flugvellinum á Akureyri til Amsterdam næsta vetur. Flogið yrði á mánudögum og föstudögum frá 14. febrúar. Farnar yrðu alls átta ferðir.

Flugleiðin er afrakstur viðamikils samstarfs Transavia og Voigt Travel. Flugfélagið hefur flogið til Lapplands í Finnlandi og Svíþjóð og norðurhluta Noregs um árabil fyrir Voigt Travel. Nú hefur Íslandi verið bætt við lista áfangastaða þess við heimskautsbauginn.

  „Sem ferðaskrifstofa þurfum við stöðugt að skapa okkur sérstöðu,“ segir Cees van den Bosch, forstjóri Voigt Travel, sem var meðal farþega í þessu flugi til Akureyrar. „Ísland hefur aldrei verið vinsælla, en aðallega fyrir stutt stopp sem viðkomustaður, og þessi magnaði áfangastaður á betra skilið en það. Þess vegna höfum við vísvitandi valið að fljúga til Akureyrar til að gera farþegum okkar kleift að ferðast strax utan alfaraleiða og taka sér tíma til að kanna landið. Norðurhluti Íslands er enn að miklu leyti ósnortinn og þar má finna alveg jafnmikið af fossum, svörtum ströndum, eldfjöllum og leirböðum og á Suðvesturlandi.“

Áhöfnin í fyrsta fluginu auk starfsmanna Akureyrarflugvallar í morgun

  Charles Verstegen, framkvæmdastjóri: „Transavia er með sterka stöðu á þekktum ferðamannastöðum í Suður-Evrópu, Norður-Afríku og Miðausturlöndunum. Með þessu þægilega beina flugi til Akureyrar er nú einnig hægt að komast til norðurhluta Evrópu frá Hollandi á sumrin.“

Farþegar Voigt Travel, BBI Travel og Transavia fengu óvæntan glaðning við innritun þar sem þeir fengu gjafabréf fyrir skál af íslensku skyri á flugvellinum í Rotterdam. Um borð beið svo glaðningur frá Transavia og Voigt Travel. Strax eftir lendingu var flugvélin hyllt með heiðursboga úr vatni og í flugstöðinni tóku opinber sendinefnd og fjölmiðlar hlýlega á móti farþegunum.

Sérhæfa sig í ævintýraferðum til nyrstu hluta Evrópu

Voigt Travel er hollensk ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í ævintýraferðum til nyrstu hluta Evrópu. Það er sú ferðaskrifstofa í heiminum sem býður upp á flest bein flug til heimskautasvæðisins í Evrópu. Voigt Travel býður upp á ferðir til átta áfangastaða í Lapplandi í Finnlandi og Svíþjóð, í Norður-Noregi og á Íslandi, bæði á sumrin og veturna, sem gerir þetta svæði sífellt aðgengilegra fyrir ferðamenn sem vilja upplifa eitthvað sérstakt á ósnortnum áfangastað. Voigt Travel vill verða númer eitt á Norðurlöndunum, og flugum og samstarfsaðilum þess í Norður-Evrópu fjölgar með ári hverju.

Farþegar ganga frá borði við komuna til Akureyrar í morgun eftir 2:50 klukkustunda flug frá Rotterdam

  „Við bjóðum Voigt Travel og viðskiptavini þeirra velkomna til Norðurlands. Með opnun þessarar nýju gáttar til Íslands um flugvöllinn á Akureyri býðst ferðamönnum nýr og spennandi valkostur þegar þeir heimsækja landið,“ segir Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnastjóri á Markaðsstofu Norðurlands.


 
„Með því að lenda á miðju Norðurlandi bjóðast tækifæri til að sjá marga fallegustu staði Íslands og upplifa norðurslóðir í sinni tærustu mynd, allt frá öflugasta fossi Evrópu og yfir í hvalaskoðun við Heimskautsbauginn.  

  Vikulegt flug Transavia fyrir Voigt Travel milli Rotterdam og Akureyrar í sumar skiptir sköpum fyrir okkur og þróun okkar sem áfangastaðar. Við erum mjög ánægð með samstarfið við Voigt Travel sem veitir gestum okkar tækifæri til að komast í tæri við alla þá ósviknu og spennandi upplifun sem Norðurland hefur upp á að bjóða.“







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga