flugfréttir

Vængendahvirflar talin möguleg orsök flugslyss í Dubai

- Voru fyrir aftan Airbus A350-900 þotu í aðfluginu

28. maí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 10:38

Flugvélin sem fórst var af gerðinni Diamond DA62 og í eigu breska fyrirtækisins Flight Calibration Services

Rannsóknarnefnd flugslysa í Bretlandi telja að orsök flugslyss, er lítil tveggja hreyfla flugvél af gerðinni Diamond DA62 sem fórst í aðflugi að flugvellinum í Dubai þann 16. maí sl., megi sennilega rekja til þess að flugvélin hafi lent í vængendahvirflum frá Airbus A350 þotu sem var í lendingu á sama tíma.

Diamond DA62 flugvélin, sem var í eigu breska fyrirtækisins Flight Calibration Services, var að framkvæma prófanir á aðflugsvitum og siglingabúnaði fyrir Dubai-flugvöll þegar hún hrapaði í sjóinn í um 5 kílómetra fjarlægð frá flugvellinum. 

Farþegaþota af gerðinni Airbus A350-900 frá Thai Airways hafði lent á flugvellinum eftir flug frá Bangkok á svipuðum tíma þrátt fyrir að vélarnar voru í aðflugi á sitthvorri brautinni sem liggja samsíða en þó með aðeins 380 metra millibili.

Í myndbandsupptöku úr öryggismyndavél sem rannsakendur flugslysa hafa skoðað þá virðist sem að Diamond DA62 flugvélin hafi mögulega lent í vængendahvirflum er hún var í 1.100 feta hæð er hún var fyrir aftan Airbus A350-900 þotuna.

Fjórir voru um borð í flugvélinni og lifði engin slysið af en flugvélin var á breskri skráningu og í eigu fyrirtækisins Flight Calibration Services sem sér um mælingar á aðflugsvitum á flugvöllum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga