flugfréttir

Icelandair segir upp 45 flugmönnum á Boeing 737 MAX

31. maí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 18:26

Fyrsta Boeing 737 MAX þota Icelandair á Reykjavíkurflugvelli í apríl 2018

Icelandair hefur sagt upp 45 flugmönnum sem flugu Boeing 737 MAX þotunum sem hafa verið kyrrsettar frá því í mars í vor.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group en tæpar 12 vikur eru liðnar frá því að félagið lagði Boeing 737 MAX þotunum líkt og önnur flugfélög í heiminum.

Meðal þeirra sem var sagt upp eru 21 nýliði sem byrjuðu að fljúga Boeing 737 MAX í sumar og þá var einnig ráðningarsamningum við 24 flugmenn, sem hófu þjálfun sl. haust, slitið.

Ástæða uppsagnanna er sú að Icelandair gerir ekki ráð fyrir Boeing 737 MAX í leiðarkerfinu fyrr en um miðjan september eins og tilkynnt var í síðustu viku.

„Það er þungbært að þurfa að grípa til þessarar sársaukafullu aðgerðar en við teljum það nauðsynlegt í ljósi þeirra erfiðu aðstæðna sem komnar eru upp vegna kyrrsetningar Boeing 737 MAX vélanna,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group.

Stjórnklefinn á Boeing 737 MAX

Bogi tekur einnig fram að kyrrsetningin hafi neikvæð áhrif á rekstur félagsins og verður félagið því að leita allra leiða til að hagræða og draga úr kostnaði. „Við vonumst þó til að geta gefið þessum flugmönnum kost á starfi hjá fyrirtækinu á ný þegar undirbúningur fyrir næsta sumar fer af stað en það kemur betur í ljós þegar málin skýrast varðandi MAX vélarnar.“, segir Bogi.

Fram kemur að Icelandair muni bjóða aðstoð við atvinnuleit í samstarfi við ráðningastof. Þá segir flufélagið þá flugmenn sem hafa til þess tilskilda þjálfun eiga kost á að fara í önnur störf hjá félaginu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga