flugfréttir

Ráðgjafarfyrirtæki aðstoða við að laga ímynd Boeing

- Unnið allan sólarhringinn að því að koma Boeing 737 MAX aftur í loftið

7. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 13:54

Stór hluti af þeim Boeing 737 MAX þotum sem bíða þess að verða afhentar eru þotur sem fara til China Southern Airlines í Kína

Boeing vinnur nú hörðum höndum að því að koma Boeing 737 MAX aftur í loftið eftir 3 mánaða kyrrsetningu um allan heim en eitt stærsta vandamálið verður einnig að endurheimta ímynd Boeing sem lengi hefur verið einn stærsti flugvélaframleiðandi heims.

Greg Smith, fjármálastjóri Boeing, segir að daglega sé verið að vinna að því að laga ímynd Boeing og Boeing 737 MAX en málið varðandi lagfæringar og uppfærslur á þotunni er núna inn á borði hjá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA).

Greg Smith, fjármálastjóri Boeing

Nýta alla þá bestu í sínu fagi

Smith segir að verið sé að nýta hvern einasta mannskap og alla þá sem hafa bestu þekkingu í sínu fagi til þess að endurheimta aftur það traust sem Boeing hafði og einnig upphaflega ímynd á MAX merkinu.

Boeing er sagt vera meðal annars að leita að aðstoð frá utanaðkomandi fyrirtækjum til þess að fá ráð við markaðsímynd Boeing 737 MAX þotunnar í þeim tilgangi að endurheimta traust almennings á þotunni.

Smith tekur ekki fram hvort að verið sé að skoða þann möguleika að breyta MAX nafninu en segir að viðræður varðandi alla kosti séu í gangi við viðskiptavini og flugfélög og verið sé að fara yfir hvað önnur flugfélög hafi gert í gegnum tíðina þegar þau þurftu að ganga í gegnum erfiðleika sem þessa.

Hluti af þeim Boeing 737 MAX þotum sem hafa verið kyrrsettar

Engin dagsetning er komin varðandi hvenær Boeing 737 MAX mun fljúga á ný og sé það núna ein stærsta dagsetning sem allir í flugiðnaðinum eru að fylgjast með. - „Það er unnið allan sólarhringinn að því að koma Boeing 737 MAX aftur í loftið“, segir Smith.

Þá sé verið að sjá til þess að allt gangi snuðrulaust fyrir sig hjá þeim fyrirtækjum sem framleiða íhluti í Boeing 737 MAX en meðal þess er fyrirtækið Spirit AeroSystems sem framleiðir um 70% af öllum þeim íhlutum og pörtum sem hver Boeing 737 MAX þota samanstendur af.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga