flugfréttir
Malta Air nýtt dótturfélag Ryanair á Möltu
Boeing 737-800 þota Ryanair í lendingu á flugvellinum á Möltu
Ryanair hefur áform um að stofna nýtt dótturfélag á eyjunni Möltu sem mun koma til með að heita Malta Air.
Malta Air mun hefja starfsemi sína með sex flugvélum og er stefnt á að fjölga vélunum í flotanum upp
í tólf þotur á næstu árum.
Ryanair gerir út sex farþegaþotur á eyjunni á flugvellinum í borginni Valletta og hefur félagið meiri umsvif
en ríkisflugfélagið Air Malta.
Ryanair flýgur frá Möltu til yfir 60 áfangastaða en félagið mun flytja um 300 áhafnarmeðlimi til Möltu með tilkomu flugfélagsins nýja.
Ryanair hafði áhuga á að fjárfesta í ríkisflugfélaginu Air Malta en ríkisstjórn landsins hafði ekki áhuga
á að láta Ryanair koma að rekstri félagsins og hófust því viðræður um að koma á fót nýju dótturfélagi
á eyjunni sem mun fara í beina samkeppni við Air Malta.
Ryanair hefur verið í nánu samstarfi við ríkisstjórn Möltu og meðal annars er verið að finna
stað á flugvellinum fyrir nýtt flugskýli sem mun rísa þar í tengslum við starfsemina.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.