flugfréttir
Tilkynning Isavia: Vegna komu tyrkneska landsliðsins til Íslands
Frá flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli
Isavia hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna frétta af komu tyrkneska karlalandsliðsins í knattspyrnu til Ísland.
Þar er áréttað að brottfararflugvöllur landsliðshópsins í Tyrklandi er ekki hluti af skilgreindu heildstæðu öryggissvæði, eða One Stop Security, sem gildir fyrir flugvelli í ríkjum ESB og á EES-svæðinu eða í þeim löndum sem gert hafa sérstaka samninga um það.
Isavia er því skylt að framkvæma öryggisleit á öllum farþegum sem koma frá slíkum flugvöllum. Íslenskir farþegar, svo og farþegar allra annarra þjóða sem koma frá flugvöllum utan One Stop Security þurfa að fara í gegnum sama ferli.
Öryggi farþega sem fara um Keflavíkurflugvöll er eitt af grunngildum Isavia og öryggisreglur þær sem fylgt er á flugvellinum eru settar á grundvelli alþjóðlegra skuldbindinga. Af þeim sökum eru Isavia ekki í neinni stöðu til að gefa undantekningar frá þessum mikilvægu reglum.
Öryggisleitin gengur vanalega fljótt fyrir sig en í gærkvöldi tók leitin þó lengri tíma þar sem leita þurfti að raftækjum og vökva í óvanalega mörgum töskum farþega með vélinni þar sem óskum um að slíkt væri fjarlægt úr töskum var ekki sinnt í öllum tilfellum.
Ferlið gekk þó fljótt fyrir sig og var flugvél tyrkneska liðsins komin í stæði á Keflavíkurflugvelli um kl. 19:40 í gærkvöld og voru síðustu farþegar komnir út um tollsal um kl. 21. Ferlið í heild sinni hefur því tekið um 80 mínútur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.