flugfréttir

Boeing 737 MAX í ferjuflugi fékk ekki að fljúga yfir Þýskaland

- Þurfti að lenda í París á leið frá Malaga til Stokkhólms í gær

12. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 12:30

Boeing 737 MAX þota Norwegian

Áhöfn á Boeing 737 MAX þotu frá Norwegian, sem verið var að ferja frá Malaga á Spáni til Stokkhólm, neyddist til þess að lenda í Frakklandi þar sem flugmálayfirvöld í Þýskalandi meinuðu vélinni að fljúga í gegnum þýska lofthelgi.

Boeing 737 MAX þotan fór í loftið frá Malaga í gær og var ferið að koma vélinni heim til Svíþjóðar en þotan hefur verið kyrrsett á Spáni frá því að Boeing 737 MAX vélarnar voru kyrrsettar í mars.

Engir farþegar voru um borð þar sem um ferjuflug var að ræða en þegar flugvélin var að nálgast landamæri Þýskalands byrjaði hún að hringsóla yfir Frakklandi þar sem þýsk yfirvöld gáfu flugvélinni ekki leyfi fyrir því að fara í gegnum lofthelgina.

Flugmennirnir lentu þess í stað á Paris-Vatry flugvellinum, skammt suður af borginni Reims, en Vatry-flugvöllurinn er staðsettur í 135 kílómetra fjarlægð austur af París.

Þrátt fyrir að allar Boeing 737 MAX þotur séu kyrrsettar þá hafa verið gerðar undnatekningar ef verið er að flytja flugvélarnar á milli staða og hafa evrópsk flugmálayfirvöld (EASA) þá gefið sérstakt leyfi fyrir slíku flugi þar sem verið er að endurstaðsetja vélarnar.

Slíkt leyfi kemur þó ekki í veg fyrir það að flugmálayfirvöld í hverju landi fyrir sig geta neitað viðkomandi flugvél leyfi til þess að fljúga í gegnum sína lofthelgi.

Flugferill vélarinnar (SE-RTB) á Flightradar24 í gær:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga