flugfréttir
Chair nýtt flugfélag í Sviss
- Reist á grunni Germania Flug
Fyrsta Airbus A319 þotan í litum Chair Airlines
Nýtt flugfélag hefur verið stofnað í Sviss sem ber heitið Chair Airlines og hefur fyrsta þotan í flota félagsins verið máluð í litum þess en félagið er nýtt flugfélag sem reist var á grunni Germania Flug.
Germania Flug var svissneski hluti þýska flugfélagsins Germania sem varð gjaldþrota í febrúar
en gjaldþrotið hafði ekki áhrif á rekstur Germania Flug og var ákveðið að blása nýju lífi í félagið
og breyta nafni þess.
Nafn félagsins samanstendur seinni helminginum, „air“, með stafina CH fyrir framan sem er skammstöfun og landsstafirnir fyrir Sviss.
Eftir gjaldþrot Germania var allur hluti móðurfélagsins í Germania Flug seldur til fyrirtækisins Albex
Aviation í Sviss sem á einnig flugfélagið Air Prishtina
Germania Flug hefur þrjár Airbus A319 þotur í flota sínum og verða hinar tvær einnig málaðar í litum Chair Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.