flugfréttir
Sagt að Airbus kynni A321XLR til leiks í næstu viku
- Hefur flugdrægi upp á yfir 9.000 kílómetra
Airbus A321LR þotan flaug jómfrúarflugið í janúar árið 2018
Sagt er að Airbus ætli sér að kynna Airbus A321XLR formlega til leiks á flugsýningunni Paris Air Show sem hefst í næstu viku.
Með því er Airbus að koma með á markaðinn langdrægustu flugvél í flokki meðalstórra
farþegaþotna sem völ er á sem mun gefa flugfélögum tækifæri á að fljúga flugleiðir sem eru allt að 5.000 mílna (9.300 kílómetra) langar.
Það jafngildir því að þotan gæti flogið frá Keflavíkurflugvelli í beinu flugi til Perú í Suður-Ameríku, til
Dar es Salaam í Tanzaníu og til Asíu gæti hún drifið til Hong Kong og Tokýó.
Samkvæmt fjórum aðilum, sem eru kunnugir málinu, þá hefur Airbus átt í viðræðum við
þá viðskiptavini sem koma til greina sem mögulegir kaupendur áður en framleiðandinn tilkynnir
formlega um A321XLR sem verður enn langdrægari útgáfa af Airbus A321LR.
Airbus hefur ekki enn tiltekið nákvæmar tölur varðandi getu og eiginleika þotunnar en talið er að
allavega eitt bandarískt flugfélag sé að fara tilkynna pöntun í Airbus A321XLR.
Airbus kynnti A321XLR fyrir Air Transat í Kanada og fyrir flugvélaleigunni AerCap í október í fyrra
sem hentuga lausn til þess að fljúga með minni farþegaþotum yfir Atlantshafið til Evrópu og það
innarlega inn til meginlandsins til áfangataða á borð við Split í Króatíu frá Montréal og Toronto.
Bæði American Airlines og United Airlines hafa sagt að félögin myndu alvarlega skoða þann möguleika á að panta Airbus A321XLR og þá hefur United sagt að félagið væri til í að panta þoturnar til að leysa af hólmi Boeing 757 þoturnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.