flugfréttir
Nepal Airlines setur seinni Boeing 757 þotuna á sölu
- Sú fyrri var seld árið 2017
Boeing 757-200M þotan, sem Nepal Airlines er að setja á sölu, ber skráninguna 9N-ACB
Nepal Airlines hefur sett síðustu Boeing 757 þotuna á sölu eftir að stjórn flugfélagsins samþykkti sölu á flugvélinni.
Um er að ræða Boeing 757-200M þotu sem er 31 árs gömul, framleidd árið 1988, og kemur hún
með sameiginlegu farþega- og fraktrými með stórri frakthurð á aðalþilfari.
Nepal Airlines hafði tvær Boeing 757 þotur í flotanum frá árinu 1987 sem félagið fékk til að leysa Boeing 727 af hólmi.
Félagið hefur nýlega fengið tvær nýjar Airbus A330 breiðþotur í stað Boeing 757 vélanna og hætti félagið með þá fyrri
í rekstri árið 2017 og var hún sett á sölu sama ár.
Nepal Airlines tókst að selja fyrri þotuna og var það framkvæmdarstjóri nepalska flugfélagsins
BB Airways sem keypti þotuna fyrir 153 milljónir króna.
Sú fyrri, 9N-ACA, seldist árið 2017
Félagið ætlaði sér að fara með seinni þotuna í C-skoðun fyrr á þessu ári en hætti við þau áform vegna
þess hversu dýr sú skoðun er og var ákveðið að selja vélina í því ástandi sem hún er.
Boeing 757-200M getur tekið tvær til þrjár pallettur af frakt að framan og kemur með sætum fyrir allt að 148 farþega en báðar vélarnar koma með RB211-535E1 hreyflum frá Rolls-Royce.
Nepal Airlines segir að lágmarksboð í Boeing 757 þotuna séu 975 milljónir króna en svissneska fyrirtækið
Fintech metur þotuna samt á 1,2 milljarða króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.