flugfréttir
Sveinbjörn Indriðason nýr forstjóri Isavia
Sveinbjörn hefur sinnt starfi forstjóra Isavia sl. mánuði
Stjórn Isavia hefur ráðið Sveinbjörn Indriðason í starf forstjóra Isavia og tekur hann strax við starfinu, sem hann hefur gegnt undanfarna mánuði ásamt Elínu Árnadóttur aðstoðarforstjóra.
„Sveinbjörn hefur á síðustu mánuðum sýnt mikla leiðtogahæfileika sem starfandi forstjóri Isavia. Hann hefur mikla reynslu og þekkingu á fyrirtækinu – og hefur um leið slegið nýjan tón. Það eru fjölmargar áskoranir framundan og mikilvægt að stýrt sé af festu og ábyrgð.
Við treystum Sveinbirni afar vel til þeirra verka. Um leið viljum við þakka þeim fjölmörgu hæfu umsækjendum sem sóttu um starfið og þann áhuga sem þeir sýndu,“ segir Orri Hauksson, stjórnarformaður Isavia.
„Ég þakka það traust sem mér er sýnt með ráðningunni,“ segir Sveinbjörn. „Starfið er mjög spennandi og framundan margvísleg verkefni. Hjá Isavia starfar margt hæfileikaríkt og gott starfsfólk sem ég hlakka til að vinna með áfram. Isavia er mikilvægt fyrirtæki fyrir íslenskt samfélag og brýnt að reksturinn sé stöðugur til framtíðar.“
Umsækjendur um starf forstjóra Isavia voru 26. Ráðningarstofan Intellecta var fengin til að annast ráðningarferlið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.