flugfréttir
Kennsluflugvél nauðlenti á Vestfjörðum
- Nemandi í einflugi var um borð og er hann ómeiddur
Diamond DA20 kennsflugvél Flugakademíu Keilis
Kennsluflugvél frá Flugakademíu Keilis þurfti að nauðlenda á Vestfjörðum seinnipartinn í dag.
Samkvæmt tilkynningu þá kemur fram að einn nemandi hafi verið um borð í vélinni og er hann ómeiddur en nemandinn tilkynnti sjálfur um atvikið eftir lendingu.
Keilir er í nánum samskiptum við flugmálayfirvöld en fram kemur að vélin hafi orðið fyrir minniháttar
skemmdum.
Ekki kemur fram af hvaða tegund kennsluflugvélin er en mögulegt sé að um sé að ræða vél
af gerðinni Diamond DA40 samkvæmt vefsíðunni Flightradar24.com.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.